13. febrúar 2026

Nýskráðum leigusamningum hefur ekki fjölgað þrátt fyrir almenna skráningarskyldu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Frá og með síðustu áramótum er öllum leigusölum skylt að skrá leigusamninga í leiguskrá HMS
  • Alls tóku 1.645 leigusamningar gildi í leiguskrá í janúar síðastliðnum, á sama tíma og 1.011 leigusamningar féllu úr gildi
  • Þrátt fyrir gildistöku almennrar skráningarskyldu er ekki að greina fjölgun nýskráðra leigusamninga í leiguskrá HMS í janúar 2025

Færri leigusamningar tóku gildi í nýliðnum janúarmánuði samanborið við janúar í fyrra, en nokkur fjöldi námsmannaleigusamninga tekur alla jafna gildi í janúar. Almenn skráningarskylda leigusamninga tók gildi um síðustu áramót, en þó er ekki að greina neina fjölgun nýskráðra leigusamninga í leiguskrá HMS.

Ný­skráð­ir leigu­samn­ing­ar í jan­ú­ar færri en í fyrra

Alls tóku 1.645 leigusamningar gildi í leiguskrá HMS í janúar síðastliðnum, á sama tíma og 1.011 leigusamningar féllu úr gildi. Líkt og í janúarmánuðum fyrri ára fjölgaði leigusamningum mest á milli mánaða á landsbyggðinni þar sem nokkur fjöldi leigusamninga um námsmannaíbúðir tók gildi. Nýskráðir leigusamningar voru aftur á móti færri en í janúar í fyrra, þegar 1.963 leigusamningar tóku gildi.

Skrán­ing leigu­samn­inga í leigu­skrá HMS for­senda fyr­ir skattaí­viln­un vegna leigu­tekna

Frá og með síðustu áramótum er öllum leigusölum skylt að skrá leigusamninga í leiguskrá HMS, en áður þurftu einungis þeir leigusalar sem höfðu fleiri en tvær íbúðir til útleigu að skrá leigusamninga. Skráningarskyldan nær til allra gildra leigusamninga og er liður í að styrkja umgjörð leigumarkaðarins, auka gagnsæi og bæta aðgengi að áreiðanlegum upplýsingum.

Á myndinni hér að neðan má sjá fjölda leigusamninga eftir skráningardegi undanfarin tvö ár en hafa þarf í huga að einstaklingar geta skráð samning sem nú þegar hefur tekið gildi eða tekur gildi í framtíðinni.

Með almennri skráningarskyldu húsaleigusamninga var skráning í leiguskrá HMS jafnframt gerð að forsendu fyrir afslætti af fjármagnstekjuskatti vegna leigutekna. Útreikningur á skattaafslætti af leigutekjum vegna leigu á árinu 2026 kemur hins vegar ekki til skoðunar fyrr en við framtalsskil í mars árið 2027.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS