Skipulagsdagurinn 2026

location-svg

Grand hótel

9:00-16:00

Upplýsingar

location-svg

Grand hótel

9:00-16:00

5

nóv.

Skipulagsdagurinn 2026 fer fram þann 5. nóvember, kl 9-16 í Háteig á Grandhótel og í beinu streymi. Hús opnar kl 8:30. Fundarstjóri verður Bergsteinn Sigurðsson.

Dagskrá

9.00 Opnun fundar, Bergsteinn Sigurðsson, fundarstjóri 

9.05 Ávarp ráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra

9.15 Inngangsorð Ólafs Árnasonar, framkvæmdarstjóra skipulags- og umhverfismatssviðs HMS 

Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana

9.35 Samþætting skipulagsmála og húsnæðisáætlana. Elmar Erlendsson, HMS.

9.45 Reykjavík einfaldar: Hvernig borgin getur einfaldað ferla, aukið fyrirsjáanleika, stytt afgreiðslutíma og bætt þjónustu við íbúa, hönnuði og uppbyggingaraðila, Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, Reykjavíkurborg.

9.55 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Pétur Ingi Haraldsson hjá Akureyrarbæ, Þorvaldur Gissurarson hjá ÞG verk.

10.25 Morgunhressing

Staða og þróun skipulagsmála og landnýtingar

10:55 Staða og þróun landnýtingar, Tryggvi Már Ingvarsson, HMS.

11:05 Lykiltölur hins byggða umhverfis á höfuðborgarsvæðinu, Hrafnkell Proppé, Urbana ráðgjöf.

11.15 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Ásdís Ólafsdóttir hjá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Herdís Sigurgrímsdóttir hjá HMS.

11.45 Hádegisverður

13.00 Ávarp Sambands íslenskra sveitarfélaga, Arnar Þór Sævarsson.

Aðlögun byggðar að loftslagsbreytingum

13.10 Skipulag og mannvirki, hvað grípur skipulagið og hvar tekur mannvirki við?, Elín Þórólfsdóttir, HMS

13.20 Blágrænn Grundarfjörður, Nanna Vilborg Harðardóttir, Grundarfjarðarbæ.

13:30 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Finnur Ricart Andrason hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Gunnar Páll Eydal hjá Verkís, Hulda Ragnheiður Árnadóttir hjá Náttúruhamfaratrygging Íslands.

14.00 Síðdegishressing

Menningarlandslag, ásýnd byggðar í dreifbýli og þéttbýli

14.30 Borgin sem við mótum, Borgarhönnunarstefna Reykjavíkur Rebekka Guðmundsdóttir, Reykjavíkurborg

14:40 Menningarlandslag: ókortlögð verðmæti, Birna Lárusdóttir

14:50 Umræður í pallborði

Við hóp frummælenda bætast Dr. Harpa Stefánsdóttir hjá LBHÍ, Sigríður Björk Jónsdóttir hjá HMS, Þórhildur Þórhallsdóttir hjá Landmótun.

15:20 Lokaorð

15.30 Ráðstefnulok – léttar veitingar

Fagfólk, kjörnir fulltrúar og allt áhugafólk um skipulag er hvatt til að taka daginn frá. Þátttökugjald er 10.000 krónur en innifalin er morgunhressing, hádegisverður og síðdegishressing. Þátttökugjald fyrir nema er 5.000 krónur.  

Uppselt er á viðburðinn en hægt að skrá sig á biðlista. Minnum einnig á streymi og hægt verður að senda inn spurningar á vefformi.

Skrá mig á biðlista