13. mars 2026

Algengt að nýlegar íbúðir séu í útleigu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Færri leigusamningar tóku gildi í leiguskrá HMS í febrúar 2026 samanborið við febrúar 2025
  • Rúmlega 14% gildra leigusamninga varða íbúðir sem byggðar hafa verið á undanförnum 5 árum
  • Hátt hlutfall leigusamninga um nýlegar íbúðir skýrist ekki eingöngu af kröftugri uppbyggingu

Færri nýir leigusamningar tóku gildi og fleiri féllu úr gildi í febrúar síðastliðnum samanborið við sama tímabil í fyrra. Hlutfallslega margir leigusamningar í leiguskrá HMS varða íbúðir sem byggðar hafa verið á árunum 2021-2025, eða um 14% allra gildra leigusamninga. Hátt hlutfall skýrist að hluta til af kröftugri uppbyggingu undanfarin ár, en aðrir þættir spila einnig inn í.

Nýj­um leigu­samn­ing­um í febr­ú­ar fækk­aði milli ára

Rúmlega 13% færri leigusamningar tóku gildi í leiguskrá HMS í febrúar síðastliðnum heldur en árið áður, eða alls 1.385 samningar í febrúar 2026 samanborið við 1.597 leigusamninga í febrúar 2025. Á sama tíma féllu fleiri leigusamningar úr gildi í febrúar í ár heldur en í fyrra, eða 911 í febrúar 2026 samanborið við 792 í febrúar 2025.

Hlut­falls­lega marg­ir leigu­samn­ing­ar varða ný­leg­ar íbúð­ir

Rúmlega 14% gildra leigusamninga í leiguskrá HMS varða íbúðir sem byggðar hafa verið á undanförnum 5 árum. Til samanburðar varða um 10% gildra leigusamninga íbúðir sem byggðar voru á árunum 2016 – 2020 og fyrir hvert fimm ára tímabil frá 1951 til 2015 er samsvarandi hlutfall að meðaltali um 5%.

Á myndinni hér að neðan má sjá dreifingu leigusamninga eftir byggingarári leiguhúsnæðis. Á henni sést jafnframt að hlutfallslega margir leigusamningar varða íbúðir byggðar á árunum 2021 til 2025, hvort sem litið er til markaðsleigusamninga eða annarra leigusamninga.

Kröft­ug upp­bygg­ing hef­ur áhrif en fleiri þætt­ir spila inn í

Uppbygging íbúðarhúsnæðis talsverð áhrif á dreifingu leigusamninga eftir byggingarári leiguíbúðar. Líkt og lesa má úr mælaborði um fjölda íbúða og sumarhúsa á vef HMS hafa undanfarin ár einkennst af mikilli uppbyggingu nýs íbúðarhúsnæðis eftir að uppbygging hafði dregist verulega saman á árunum eftir fjármálahrunið árið 2008. Frá aldamótum fram að fjármálahruni var einnig mikill kraftur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, en árið 2006 var mesta uppbyggingarárið til þessa þegar tæplega 3.900 íbúðir voru byggðar.

Í ljósi þess er áhugavert að bera saman dreifingu íbúða og leigusamninga eftir byggingarári, líkt og myndin hér að neðan sýnir. Af myndinni er ljóst að dreifing fullbúinna íbúða er frábrugðin dreifingu leigusamninga eftir byggingarári leiguíbúðar, sér í lagi hvað varðar allra síðustu ár.

Þannig skýrist hátt hlutfall leigusamninga sem varða íbúðir sem byggðar hafa verið á undanförnum árum ekki eingöngu af mikilli uppbyggingu á tímabilinu, heldur virðast fleiri atriði hafa áhrif þar á. Má þar meðal annars nefna að frá árinu 2016 hafa stjórnvöld veitt stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða fyrir tekju- og eignalága auk þess sem áhugi fjárfesta á útleigu íbúðarhúsnæðis hefur verið talsverður undanfarin ár. Þá má einnig nefna dræma sölu nýrra íbúða undanfarin misseri sem hefur í sumum tilvikum leitt til þess að nýjar íbúðir sem ekki hefur tekist að selja hafa verið leigðar út, líkt og fjallað hefur verið um í fréttum nýlega og í fyrra.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS