25. nóvember 2026

Látum jólaljósin lýsa á öruggan hátt

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Jólaljós skapa hlýlega stemningu en skemmdur búnaður eða röng notkun getur valdið raflosti eða bruna
  • HMS hefur gefið út uppfærðan bækling um jólaljós og rafmagnsöryggi þar sem farið er yfir helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga yfir hátíðirnar
  • Með því að yfirfara jólaljósin og gæta að réttri notkun má draga úr slysahættu og njóta hátíðanna með öruggari hætti

HMS hefur gefið út nýjan bækling um jólaljós og rafmagnsöryggi. Mörg ráðanna eru kunnugleg en eiga enn fullt erindi, enda getur skemmdur ljósabúnaður eða röng notkun jólaljósa valdið raflosti eða bruna.

Í bæklingnum er farið yfir helstu atriði sem mikilvægt er að hafa í huga við val, uppsetningu og notkun jólaljósa, bæði innan- og utandyra.

Jólaljós og rafmagnsöryggi

Atriði sem vert er að hafa í huga

Yf­ir­för­um jóla­ljós­in áður en þau eru sett upp

Jólaljós geta enst árum saman en með tímanum geta leiðslur, tengingar og perustæði skemmst. Mikilvægt er að yfirfara ljósin áður en þau eru sett upp og ganga úr skugga um að hvergi sjáist í bera víra. Ekki ætti að nota skemmdar ljósakeðjur.

LED-jólaljós nota almennt minni orku og hitna yfirleitt minna en eldri glóperuljós. Þau geta því verið góður kostur, en ávallt þarf að fylgja leiðbeiningum framleiðanda.

Slökkv­um á ljós­un­um fyr­ir nótt­ina

Slökkva ætti á jólaljósum innandyra áður en farið er að sofa eða að heiman. Einnig þarf að halda ljósum frá gluggatjöldum, pappírsskrauti og öðrum eldfimum efnum.

Gæta þarf að rafmagnstengingum og forðast að ofhlaða fjöltengi eða tengja mörg fjöltengi hvert við annað.

Velj­um ljós sem þola ís­lenskt veð­ur­far

Jólaljós utandyra þurfa að þola raka, úrkomu og breytilegt veðurfar. Því er mikilvægt að nota eingöngu ljós sem ætluð eru til útinotkunar og eru með viðeigandi IP-vörn.

Einnig þarf að festa ljósin tryggilega, gæta þess að vatn safnist ekki í tengingar og fylgja leiðbeiningum framleiðanda þegar margar ljósakeðjur eru tengdar saman.

Kynntu þér ráð­in í nýj­um bæk­lingi HMS

Í bæklingnum Jólaljós og rafmagnsöryggi má finna fleiri ráð um örugga notkun jólaljósa, val á réttum búnaði og hvernig draga má úr hættu á raflosti og bruna yfir hátíðirnar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS