24. júlí 2026

Margvísleg merki um hóflegan samdrátt í byggingariðnaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Starfandi í byggingariðnaði hefur fækkað en atvinnulausum hefur fjölgað
  • Atvinnuleysi í byggingariðnaði hefur aukist hraðar en annars staðar í hagkerfinu undanfarin ár
  • Nýskráningum fyrirtækja í byggingariðnaði hefur farið fækkandi þó þær séu enn fleiri en gjaldþrot í greininni

Greina má ýmis merki um samdrátt í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Að undanförnu hefur starfsfólki í greininni fækkað og atvinnuleysi aukist á sama tíma og nýskráningum í greininni hefur fækkað og gjaldþrotum hefur fjölgað. Þetta er meðal þess sem fjallað er um í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir júlímánuð.

Mánaðarskýrsla HMS fyrir júlí 2026

At­vinnu­leysi hef­ur auk­ist hrað­ar en ann­ars stað­ar í hag­kerf­inu

Alls störfuðu rúmlega 19.000 manns í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð í maí síðastliðnum, samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Starfsfólki í greininni hefur fækkað um 2% á síðustu 12 mánuðum. Samkvæmt gögnum frá Vinnumálastofnun voru 1.167 atvinnulausir í byggingariðnaði í júní síðastliðnum, rúmlega þriðjungi fleiri en á sama tíma fyrir ári síðan.

Með því að skeyta saman gögnum frá Hagstofu Íslands og Vinnumálastofnun er hægt að áætla atvinnuleysi í greininni og í hagkerfinu í heild sinni frá árinu 2008. Þróunina má sjá á mynd hér að neðan, en samkvæmt henni mælist atvinnuleysi í greininni nú um 6%, á meðan áætlað atvinnuleysi í hagkerfinu í heild sinni mælist um 4% samkvæmt þessari mæliaðferð.

Atvinnuleysi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur aukist hraðar en atvinnuleysi annars staðar í hagkerfinu á síðustu fjórum árum. Líkt og myndin hér að ofan sýnir er atvinnuleysi í greininni það mesta sem mælst hefur frá árinu 2022, en er þó ekki nálægt því að vera jafnmikið og það var á tímum heimsfaraldursins árin 2020-2021 eða í kjölfar fjármálahrunsins árin 2009-2012.

 

Ný­skrán­ing­ar fyr­ir­tækja í bygg­ing­ar­iðn­aði eru enn fleiri en gjald­þrot

Svipaða þróun má sjá í þróun skráðra fyrirtækja í greininni. Myndin hér að neðan sýnir fjölda nýskráninga og gjaldþrota í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð frá árinu 2008, eftir árshelmingum. Samkvæmt myndinni hefur nýskráningum fækkað og gjaldþrotum fjölgað frá árinu 2022.

Nýskráð fyrirtæki á fyrri helmingi þessa árs hafa ekki verið færri í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð frá árinu 2020 og gjaldþrot í greininni á nýliðnum árshelmingi hafa ekki verið fleiri frá árinu 2023. Hins vegar eru nýskráningar fyrirtækja enn margar í sögulegu samhengi og fleiri en gjaldþrot.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS