26. maí 2026
28. maí 2026
Ný brunavarnaáætlun Árnessýslu tekur gildi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hefur tekið gildi eftir samþykki HMS, stjórnar BÁ og allra átta sveitarfélaga á starfssvæðinu.
- Brunavarnaáætlanir styrkja viðbúnað slökkviliða með því að tryggja að mönnun, búnaður, þjálfun og skipulag séu í samræmi við þær hættur sem fyrir hendi eru.
- Nú eru 94% landsmanna með virka brunavarnaáætlun og hefur hlutfallið aldrei verið hærra.
Þriðjudaginn 5. maí var ný brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu (BÁ) samþykkt. Áætlunin er samþykkt af HMS, stjórn BÁ og sveitarfélögum á starfssvæði slökkviliðsins sem eru 8 talsins.
Brunavarnaáætlanir eru öflugt tæki til að skapa heildstæða yfirsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðs og hversu vel í stakk búið það er að takast á við hættur á sínu svæði í þeim tilgangi að vernda líf og eignir manna.
Brunavarnaáætlunin er aðgengileg á vef Árnessýslu en einnig er hún birt á vef HMS.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri BÁ fagnar útkomu nýrrar brunavarnaáætlunar:
,,Það er mjög ánægjulegt að brunavarnaáætlunin okkar sé komin út og samþykkt af sveitarfélögum í Árnessýslu og HMS, en hún hefur verið í vinnslu um nokkurt skeið. Í mörg horn þarf að líta við gerð brunavarnaáætlana og margt sem þarf að slípa til eins og í allri annarri áætlunargerð. Með samþykkt og útgáfu brunavarnaáætlunarinnar kemur berlega í ljós að eigendur slökkviliðsins, sem eru sveitarfélögin í Árnessýslu eru samstíga um þær lagalegu skyldur sem á herðar þeirra eru lagðar um málaflokkinn. Að mönnun, viðbragð, tækja- og húsakostur séu í takt við þær kröfur og þarfir sem þurfa að vera til staðar, til þess að bregðast við þeim atburðum og verkefnum sem slökkviliðsmenn takast á við í sínum störfum hvort heldur sem er í fullu starfi eða hlutastarfi.“
94 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun
Á þessu ári hefur einnig verið samþykkt ný brunavarnaáætlun hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hlutfall slökkviliða landsins með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 64 prósent og er markmiðið að 80 prósent slökkviliða séu með samþykkta brunavarnaáætlun fyrir árslok. Hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 94 prósent og hefur aldrei verið hærra. Í lok árs 2025 voru 90 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun.
Að hafa samþykkta brunavarnaáætlanir er mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa landsins, þar sem þær lýsa viðbúnaði slökkviliðsins og eiga þar með að tryggja betra öryggi.
Markmið brunavarnaáætlunar er að tryggja að slökkvilið sé nægilega mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað til að ráða við þær hættur sem steðja að í sveitarfélaginu. Á hverju starfssvæði slökkviliðs skal liggja fyrir brunavarnaáætlun sem fengið hefur samþykki HMS og viðkomandi sveitarstjórnar.
HMS óskar Brunavörnum Árnessýslu og íbúum sveitarfélaganna innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





