15. október 2026

Ný brunavarnaáætlun Langanesbyggðar tekur gildi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar hefur verið samþykkt og gildir í fimm ár
  • Brunavarnaáætlanir styrkja viðbúnað slökkviliða með því að tryggja að mönnun, búnaður, þjálfun og skipulag séu í samræmi við þær hættur sem fyrir hendi eru
  • Nú eru 71% slökkviliða með virka brunavarnaáætlun

Föstudaginn 18. september sl. var ný brunavarnaáætlun Slökkviliðs Langanesbyggðar samþykkt. Áætlunin var samþykkt af sveitarstjórn Langanesbyggðar og HMS. Brunavarnaáætlun er öflugt tæki til að skapa heildarsýn yfir starfsemi og ástand slökkviliðsins og hversu vel það er í stakk búið til að takast á við hættur á sínu starfssvæði til að vernda líf og eignir manna.

Þórarinn Jakob Þórarinsson slökkviliðsstjóri Langanesbyggðar sagði við þetta tækifæri:

,,Ég lýsi yfir ánægju minni með að brunavarnaáætlun Langanesbyggðar hafi verið samþykkt af sveitarfélaginu og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS). Með samþykkt hennar hefur verið stigið mikilvægt skref til að efla öryggi íbúa, vernda eignir og tryggja markviss viðbrögð við eldsvoðum og öðrum neyðartilvikum.

Fyrir sveitarfélag eins og Langanesbyggð, þar sem vegalengdir eru miklar og aðstæður geta verið krefjandi, er sérstaklega mikilvægt að fyrir liggi gild og vel unnin brunavarnaáætlun. Hún styrkir brunavarnir, bætir samhæfingu viðbragðsaðila og eykur öryggi samfélagsins í heild.

Jafnframt vil ég færa starfsfólki HMS sérstakar þakkir fyrir faglega aðkomu, leiðbeiningar og gott samstarf við gerð og yfirferð áætlunarinnar. Framlag þeirra hefur verið mikilvægt til að tryggja að áætlunin uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til brunavarna og viðbragðsáætlana.

Samþykkt brunavarnaáætlunarinnar er því ánægjulegur áfangi og mikilvægt framfaraskref fyrir Langanesbyggð.

Gild brunavarnaáætlun er grundvallarforsenda öruggs og ábyrgs reksturs sveitarfélags eins og Langanesbyggðar. Hún stuðlar að vernd mannslífa, dregur úr eignatjóni, styrkir samhæfingu viðbragðsaðila og tryggir að sveitarfélagið uppfylli lögbundnar skyldur sínar. Fyrir dreifbýlt samfélag með miklar vegalengdir og takmarkaða viðbragðsgetu er mikilvægi slíkrar áætlunar enn meira. Með reglulegri endurskoðun og uppfærslu brunavarnaáætlunar getur Langanesbyggð aukið öryggi íbúa sinna og eflt viðnámsþrótt samfélagsins gagnvart vá og slysum“.

71 pró­sent slökkvi­liða með virka bruna­varna­áætl­un

Á þessu ári hafa einnig verið samþykktar brunavarnaáætlanir hjá Brunavörnum Suðurnesja, Brunavörnum Árnessýslu og Slökkviliði Múlaþings. Hlutfall slökkviliða landsins með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 71 prósent og er markmiðið að 80 prósent slökkviliða séu með samþykkta brunavarnaáætlun fyrir árslok. Hlutfall landsmanna með virka brunavarnaáætlun er komið upp í 95 prósent og hefur aldrei verið hærra. Í byrjun árs 2026 voru um 90 prósent landsmanna með virka brunavarnaáætlun.

Að hafa samþykktar brunavarnaáætlanir er mikilvægt hagsmunamál fyrir íbúa landsins, þar sem þær lýsa viðbúnaði slökkviliða og eiga þar með að tryggja betra öryggi.

HMS óskar Slökkviliði Langanesbyggðar og íbúum sveitarfélagsins innilega til hamingju með nýja brunavarnaáætlun.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS