19. nóvember 2026
Rb-blað mánaðarins: Orkunotkun húsa – Almenn atriði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Einangrun, þéttleiki og loftskipti hafa áhrif á orkuþörf húsa
- Bætt einangrun og stýring hitakerfis geta dregið úr orkunotkun
- Tryggja þarf nauðsynleg loftskipti þótt dregið sé úr óþéttileika
Rb-tækniblöðin miðla þekkingu og leiðbeiningum um mannvirkjagerð og byggingartækni. Með Rb-blaði mánaðarins er rifjað upp efni eldri blaða sem á erindi við mannvirkjagerð í dag.
Þegar kólnar úti er við hæfi að huga að orkunotkun húsa. Rb-blað nóvembermánaðar að þessu sinni er Orkunotkun húsa – Almenn atriði. Blaðið kom út í júní 2007 og fjallar um helstu þætti sem hafa áhrif á orkuþörf til húshitunar og leiðir til úrbóta.
Orkunotkun húsa – Almenn atriði
Rb 56.004
Hvað hefur áhrif á orkunotkun húsa?
Þegar kólnar úti eykst hitamunur innan húss og utan og þar með orkutap hússins. Varmi tapast einkum um veggi, þak, gólf, glugga og hurðir og með loftskiptum. Orkuþörf til upphitunar ræðst því meðal annars af einangrun og þéttleika hússins, loftræsingu og venjum íbúa. Stærð og lögun hússins hafa einnig áhrif.
Leiðir til að bæta orkunýtingu
Blaðið skýrir hvernig orka tapast um byggingarhluta og með loftskiptum og hvernig stærð og lögun húsa hafa áhrif á orkunotkun. Með myndum og línuritum er sýnd skipting orkutaps og útskýrt hvað þarf að hafa í huga þegar orkunotkun ólíkra húsa er borin saman. Í lok blaðsins eru taldar upp helstu leiðir til úrbóta, svo sem bætt einangrun, þétting húss og stýring loftræsingar, lægri innihiti og bætt stýring hitakerfis, en ekki farið nánar í framkvæmd þeirra.
Nauðsynlegt er að tryggja loftskipti þótt dregið sé úr óþéttileika. Markmiðið er að geta stýrt loftræsingu eftir þörfum, en ekki að loka fyrir nauðsynlega loftun.
Með því að skoða ástand húss og bera áætlaða orkuþörf saman við raunverulega notkun má fá betri mynd af því hvar úrbætur geti helst dregið úr orkunotkun. Þannig má velja aðgerðir út frá aðstæðum í hverju húsi.
Önnur útgefin Rb-blöð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



