26. október 2026
Skipulagsmál á þriðja ársfjórðungi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Á þriðja ársfjórðungi má greina þó nokkuð mikla uppbyggingu í Reykjanesbæ þar sem áform eru um alls 981 íbúð í þremur deiliskipulagstillögum
- Áform um uppbyggingu ferðaþjónustu á Suðurlandi eru áberandi í stærri málum eins og t.d. á ferðamanna og náttúrusvæðum þar sem eru áform um framkvæmdir til verndar og eða bæta aðstöðu fyrir ferðafólk
- 770 skipulagsmál hafa komið inn á Skipulagsgátt það sem af er ári, málin eru fjölbreytt og á ólíkum stigum í ferlinu
Íbúðarbyggð algengasta viðfangsefni skipulagsmála
Langflest þeirra mála sem komið hafa inn í Skipulagsgátt í ár fjalla um íbúðarbyggð. Landbúnaður, verslun og þjónusta og frístundabyggð er líka áberandi. Listinn er ekki tæmandi en sýnir að um fjölbreytt viðfangsefni er að ræða. Jafnframt þarf að hafa í huga að oft er um að ræða blandaða landnotkun t.d. getur skipulag á landbúnaðarsvæði og á miðsvæðum snúið að uppbyggingu íbúða í einhverri mynd.
Tveir landshlutar skera sig úr varðandi fjölda skipulagsmála en það eru höfuðborgarsvæðið og Suðurland.
Umfangsmiklar deiliskipulagsáætlanir á borði HMS á þriðja ársfjórðungi
Hér að neðan má sjá dæmi um stærri verkefni á þriðja ársfjórðungi. Skipta má málunum niður í þrjá flokka eftir tegund áforma.
Ferðaþjónusta/gististarfsemi
Í nokkrum málum má sjá áform um að bæta aðbúnað við náttúrusvæði og vernda fyrir ágangi og eða í þeim tilgangi að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk. Dæmi um slík áform er deiliskipulag við Þórufoss í Kjós, Landmannahelli í Rangárþingi Ytra og við Sigöldugljúfur í Rangárþingi Ytra.
Þá eru áform um ferðaþjónustuuppbyggingu í Skaftárhreppi og í Hornafirði. Má þar nefna deiliskipulag fyrir jörðina Horn, þar sem helsta aðdráttaraflið er eftirmynd af víkingaþorpi. Áform eru um fjölorkustöð og þjónustumiðstöð í Skaftafelli II, og í landi Heiðarsels í Skaftárhreppi er stefnt að uppbyggingu 220 herbergja hótels með gistiaðstöðu fyrir 500 gesti.
Hér að neðan má sjá hlekki á einstök mál á Skipulagsgátt:
Nýtt deiliskipulag fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á Horni í Hornafirði
Deiliskipulag nýrrar fjölorkustöðvar og þjónustumiðstöðvar í Skaftafelli II
Samgöngu- og innviðaverkefni
Samgöngu- og innviðaverkefni voru áberandi á tímabilinu. Má þar nefna tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi að Hólmsá.
Þá voru áætlanir um stækkanir eða breytingar á þremur hafnarsvæðum. Fram komu tvær deiliskipulagsáætlanir um hesthúsasvæði. Þá eru uppi áform um stækkun gagnavers Verne Global í Reykjanesbæ.
Hér að neðan má sjá meira um einstök mál á Skipulagsgátt:
Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi að Hólmsá
Stækkun gagnarvers Verne Global í Reykjanesbæ
Stækkun hafnarsvæðis í Ölfusi til austurs
Breyting á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Patreksfirði
Deiliskipulag hafnarsvæðis á Árskógssandi
Deiliskipulag hesthúsasvæðis á Selfossi
Breyting og stækkun á deiliskipulagi hesthúsasvæðis og golfvallar á Vorsabæjarvöllum í Hveragerði
Þéttbýli/íbúðarhúsnæði
Hér sker Reykjanesbær sig úr á tímabilinu. Þar sem á borði HMS voru þrjár deiliskipulagsáætlanir sem telja samtals 981 íbúð. Hverfin eru Suðurbrautarreitur á Ásbrú, 270 íbúða hverfi, Hlíðarhverfi 3. áfangi og Suðurbrekkureitur, Ásbrú þar sem gert er ráð fyrir allt að 219 íbúðum.
Hér að neðan má sjá einstök mál á Skipulagsgátt:
Deiliskipulag fyrir Borðeyri, verndarsvæði í byggð
Nýtt deiliskipulags miðsvæðis á Kirkjubæjarklaustri
Suðurbrautarreitur á Ásbrú, Reykjanesbæ
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS






