21. september 2026

Skipulagsmál ágústmánaðar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS staðfesti 15 breytingar á aðalskipulagi í ágústmánuði
  • Lokið var við athugun á 19 deiliskipulagsáætlunum, bæði nýjum og breytingum. Einnig voru gefnar 3 umsagnir um lýsingu fyrir gerð deiliskipulags, m.a. fyrir Borðeyri og hafnarsvæðið á Árskógssandi
  • Meðal stærstu mála voru Elliðaárvogur (svæði 2c), tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi, Suðurbrautarreitur við Ásbrú og Hlíðarhverfi Reykjanesbæ 3.áfangi

 

Elliðaárvogur/Ártúnshöfði – Svæði 2C

Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ártúnshöfða svæði 2C, Þórðarhöfða. Í tillögunni sem lögð er til felst skilgreining nýrrar skólalóðar fyrir u.þ.b. 300 grunnskólabörn (1.-4. bekk) og 180 leikskólabörn. Auk skólalóðar er nýr íbúðarreitur með allt að 185 nýjum íbúðum. Fjölbreytt dvalarsvæði eru í inngarði, bílakjallari er undir reitnum og möguleiki er á starfsemi á götuhæð út að Stórhöfða.

Tvöföldun Suðurlandsvegar frá Bæjarhálsi að Hólmsá

Um er að ræða nýtt deiliskipulag fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar. Megintilgangur tvöföldunar Suðurlandsvegar er að auka umferðaröryggi með því að aðskilja akstursstefnur allra fararmáta og tryggja greiðari umferð um Suðurlandsveg. Tvöföldun vegarins á þessum vegkafla er hluti af stærra verkefni sem er breikkun Suðurlandsvegar frá Hádegismóum í Reykjavík að Hveragerði. Samkvæmt deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 2+2 stofnvegi frá Bæjarhálsi að sveitafélagsmörkum við Mosfellsbæ nálægt Hólmsá. Vegtengingum er fækkað frá því sem nú er og gert ráð fyrir heildstæðu stígakerfi fyrir gangandi, hjólandi og ríðandi vegfarendur. Útfærsla í deiliskipulagi miðar við gatnamót í plani, í samræmi við fyrsta og annan áfanga framkvæmdarinnar.  

 Suðurbrautarreitur Ásbrú

Af2 arkitektar fyrir hönd Stofnhúsa leggja fram vinnslutillögu deiliskipulags fyrir Suðurbrautarreit, 3,3 ha reitur kenndur við Suðurbraut 765. Á reitnum er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á 3-5 hæðum með allt að 300 íbúðum af fjölbreyttri gerð. Sérstakir byggingarreitir eru ætlaðir sérstakri notkun annarri en fyrir íbúðir, t.d. samkomuhús, garðskála o.fl.

Hlíðarhverfi Reykjanesbæ 3. áfangi – deiliskipulag

Arkís arkitektar leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga Hlíðarhverfis fyrir hönd Miðlands ehf. Um er að ræða 492 íbúðir í fjölbýlishúsum og sérbýli. Uppbyggingin er á tveimur svæðum aðskildum með grænum geira.

 

Fleiri mál má finna inn á Skipulagsgátt og vakin er athygli á að þar er m.a. hægt að leita að málum eftir tímabilum, svæðum, hvar það er í ferli og stöðu máls. Jafnframt er hægt að vakta valin svæði.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS