8. október 2026

Skráðum íbúðum í byggingu fjölgar milli mánaða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðum í byggingu fjölgar um tæp 15% milli mánaða
  • Minni íbúðir vega þyngra í uppbyggingu en í fyrri viðskiptum
  • Fjölgun íbúða í byggingu gæti skýrst af uppfærðum skráningum

Samkvæmt mælaborði HMS um íbúðir í byggingu eru nú 6.350 íbúðir skráðar í byggingu á landinu öllu. Það er um 15% fjölgun frá september, þegar þær voru 5.533. Byggingaráformum fækkaði hins vegar um 15% á sama tímabili, úr 1.141 í 975. Þar er átt við íbúðir sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru ekki hafnar. Fjöldi þeirra gefur því vísbendingu um mögulega uppbyggingu sem er fram undan.

Stærðardreifing óseldra nýbygginga bendir til misræmis milli framboðs og eftirspurnar

Algengasta stærð íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu er 80–89 fermetrar, en um 14% þeirra falla í þann flokk í október. Stærðardreifingin er nokkuð svipuð og meðal seldra íbúða á árunum 2020–2026, en íbúðir á bilinu 40–89 fermetrar eru hlutfallslega fleiri í byggingu. Það þýðir að minni íbúðir vega þyngra í núverandi uppbyggingu en í íbúðaviðskiptum undanfarinna ára.

Dreifing óseldra nýbygginga er hins vegar önnur. Þær eru hlutfallslega algengastar á bilinu 80–119 fermetrar. Þar skera 90–99 fermetra íbúðir sig úr og eru um 18% óseldra nýrra íbúða, samanborið við um 11% seldra íbúða. Íbúðir undir 80 fermetrum eru aftur á móti hlutfallslega færri meðal óseldra nýbygginga. Þetta samræmist fyrri greiningum HMS á því að minni nýjar íbúðir seljist greiðar en stærri. Í maímánaðarskýrslu HMS kom til að mynda fram að birgðatími stærstu fjölbýlisíbúðanna á höfuðborgarsvæðinu væri rúmlega þrefalt lengri en þeirra minnstu.

Í desember í fyrra voru íbúðir undir 90 fermetrum þegar hlutfallslega fleiri í byggingu en meðal seldra íbúða undanfarinna ára. Þrátt fyrir það eru minni íbúðir enn hlutfallslega fátíðari meðal óseldra nýbygginga. Það bendir til þess að markaðurinn taki greiðlega við framboði þeirra og að fyrri viðskipti gefi ekki góða mynd af eftirspurn eftir minni íbúðum í dag.

Fjölgun skráðra íbúða í byggingu þýðir ekki endilega aukin umsvif

Fjölgun íbúða í byggingu á milli mánaða þarf ekki að þýða að framkvæmdir hafi raunverulega aukist. Hún gæti að hluta eða öllu leyti skýrst af uppfærðum skráningum eftir talningu HMS sem lauk í september. Í talningunni er raunveruleg staða framkvæmda könnuð. Í kjölfarið hvetur HMS sveitarfélög til að uppfæra skráningar sínar og uppfærir jafnframt eigin kerfi. Framkvæmdir sem hófust fyrr geta því fyrst komið fram í tölunum núna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS