21. október 2026

Tvö mál í kynningu, vindorkuver og vatnsaflsvirkjun

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Þessa dagana eru tvö mál í kynningu í umhverfismati
  • Vindorkuver að Hnotasteini, 216MW vindorkugarð með 30 vindmyllum innan 3.330 ha svæðis sem kallast Hnotasteinn á Hólaheiði í Núpasveit
  • Vatnsaflsvirkjun við Hagavatn, ný gögn til kynningar

 

Umhverfismatsskýrsla til kynningar – vindorkuver í Norðurþingi

Fyrirtækið Qair Ísland áformar að reisa vindorkugarð innan 3.330 ha svæðis sem kallast Hnotasteinn á Hólaheiði í Núpasveit. Gert er ráð fyrir að reistar verði 30 vindmyllur hver um 7,2 MW og að uppsett afl verði um 216 MW. Hæð þeirra miðað við spaða í efstu stöðu veður 200 m. Undirstöður vindmyllanna verða um 30 m í þvermál og kranaplan við hverja vindmyllu um 2.100 m2 að stærð. Lagðir verða um um 18,5 km af nýjum vegum á framkvæmdasvæðinu og allar vindmyllurnar verða tengdar saman með jarðstrengjum innan framkvæmdasvæðisins sem verða plægðir niður og staðsettir eins og kostur er í vegstæðum. Þá verður reist um 5000 m2 safnstöð raforku (~5.000 m2 innan framkvæmdasvæðisins. 

Kynningartími: 7. október 2026 - 18. nóvember 2026.

Skoða mál nánar á Skipulagsgátt

Ný gögn til kynningar – vatnsaflsvirkjun við Hagavatn, í Bláskógabyggð


Hagavatnsvirkjun ehf. áformar að reisa 9,9 MW vatnsaflsvirkjun við Hagavatn, sunnan Langjökuls í Bláskógabyggð. Gert er ráð fyrir því að byggja stíflu ofan við núverandi útrás úr vatninu ofan við Nýjafoss og aðra í gömlu útrásinni, að vestan ofan við Leynifoss. Við Leynifoss er gert ráð fyrir að grafa aðrennslisskurð úr Hagavatni að inntaki virkjunar, sem verður í stíflunni. Gert er ráð fyrir að vatnsborð Hagavatns verði í allt að 455 m y.s. og lónstærð um 23 km².

Framkvæmdaraðili hefur látið vinna áhrifamat á vatnhlot auk þess sem nýjar upplýsingar liggja fyrir um mælingar á rennsli og aurburði í Læminu, samhliða mælingum á sömu þáttum í útrennsli Hagavatns.

Kynningartími: 24. september 2026- 5. nóvember 2026.

Skoða mál nánar á Skipulagsgátt

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS