10. mars 2026
11. mars 2026
Verðlækkanir í söluferli íbúða færast í aukana
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fasteignasalar telja í auknum mæli að fasteignamarkaði megi lýsa sem miklum kaupendamarkaði
- Algengi þess að verð sé lækkað í söluferli eykst
- Hlutfall íbúða sem selst yfir auglýstu söluverði hefur ekki verið lægra síðan árið 2019
Enn hægir á umsvifum á fasteignamarkaði að mati fasteignasala sem telja í auknum mæli að fasteignamarkaði megi lýsa sem miklum kaupendamarkaði. Á sama tíma hefur hlutfall íbúða sem selst yfir auglýstu söluverði farið lækkandi undanfarin misseri og hefur það ekki mælst lægra síðan í apríl 2019. Þetta er meðal niðurstaðna úr mánaðarlegri spurningakönnun til fasteignasala sem fjallað verður um í næstu mánaðarskýrslu sem kemur út 19. mars næstkomandi.
Lítil virkni miðað við árstíma að mati fasteignasala
HMS framkvæmdi elleftu mánaðarlegu spurningakönnunina á meðal félagsmanna í Félagi fasteignasala þann 3. mars síðastliðinn. Þátttakendur voru 101 talsins, en félagsmenn eru 330. Svarhlutfall könnunarinnar var því 30,6%.
Líkt og undanfarna mánuði telja flestir fasteignasalar virkni á fasteignamarkaði vera litla miðað við árstíma og að markaðnum megi lýsa sem kaupendamarkaði. Áberandi aukningu má þó greina í hlutfalli þeirra sem telja að fasteignamarkaðnum megi lýsa sem miklum kaupendamarkaði, eða 37% í marskönnun samanborið við 22% í febrúarkönnun.
Á milli kannana má einnig greina fjölgun á meðal þeirra fasteignasala sem telja algengt að verð sé lækkað í söluferli. Í marskönnun sögðu 64% fasteignasala að verð væri oft eða alltaf lækkað í söluferli, samanborið við 48% í febrúarkönnun. Aðeins 3% sögðu að verð væri sjaldan eða aldrei lækkað í marskönnun, en 33% sögðu það stundum eiga sér stað.
Færri íbúðir seljast yfir auglýstu söluverði
Samanburður á gögnum um þinglýsta kaupsamninga og fasteignaauglýsingar rennir stoðum undir álit fasteignasala um verðlækkanir í söluferli. Líkt og fjallað var um í febrúarskýrslu hefur hlutfall íbúða sem selst undir auglýstu söluverði leitað upp á við á undanförnum mánuðum, á sama tíma og hlutfall íbúða sem selst yfir auglýstu söluverði hefur lækkað. Aðeins 6,6% íbúða seldust yfir auglýstu söluverði á landsvísu í janúar, en leita þarf aftur til ársins 2019 til að finna lægra hlutfall.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





