17. nóvember 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,35 prósent á milli mánaða í október 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,35 prósent á milli mánaða í október eftir að hafa hækkað um rúmt prósent í september
- Raunverðsþróun vísitölunnar á ársgrundvelli hefur farið lækkandi á árinu vegna vaxandi verðbólgu
- Íbúðaverð innan og utan höfuðborgarsvæðisins hefur þróast með sambærilegum hætti undanfarin misseri
Vísitala íbúðaverðs mældist 115,2 stig í október og hækkaði því um 0,35 prósent á milli mánaða. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 2,13 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,9 prósent. Að raunvirði hefur íbúðaverð því lækkað um 3,56 prósent síðastliðið ár.
Árstaktur vísitölu íbúðaverðs hefur verið tiltölulega stöðugur það sem af er ári eftir að hafa farið lækkandi frá miðju ári 2024. Frá því í janúar hefur tólf mánaða nafnbreyting vísitölunnar mælst að meðaltali 2,12 prósent. Þar sem verðbólga hefur aukist á árinu hefur rauntaktur vísitölunnar á ársgrundvelli hins vegar þokast niður á við, en í janúar síðastliðnum mældist hann -2,67 prósent.
Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.
Undirvísitölur fyrir sérbýli og fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu hóflega á milli mánaða, eða vísitalan fyrir fjölbýli um 0,09 prósent og vísitalan fyrir sérbýli um 0,26 prósent. Vísitalan fyrir sérbýli á landsbyggðinni hækkaði aftur á móti talsvert meira á milli mánaða, eða um 2,24 prósent, en á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir fjölbýli á landsbyggðinni um 2,85 prósent. Þetta má sjá í töflunni hér að neðan sem sýnir gildi, mánaðarbreytingu og tólf mánaða breytingu vísitölu íbúðaverðs auk allra undirvísitalna.
Vísitala íbúðaverðs fyrir október 2026
| Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
|---|---|---|---|
| Íbúðaverð | 115,2 | 0,35% | 2,13% |
| Sérbýli á hbs. | 116,9 | 0,26% | 2,54% |
| Sérbýli á landsbyggð | 118,9 | 2,24% | 3,39% |
| Fjölbýli á hbs. | 112,1 | 0,09% | 1,91% |
| Fjölbýli á landsbyggð | 115,9 | -2,85% | -1,61% |
Verðþróun innan og utan höfuðborgarsvæðisins hefur verið sambærileg undanfarin misseri
Undanfarna mánuði hefur verðþróun á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni verið sambærileg, ef litið er til tólf mánaða breytingar vísitölu íbúðaverðs fyrir höfuðborgarsvæðið annars vegar og landsbyggðina hins vegar. Síðastliðin ár hefur verð á landsbyggðinni hins vegar gjarnan hækkað hlutfallslega meira en innan höfuðborgarsvæðisins.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Nýr póstlisti hagdeildar HMS
Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Póstlisti hagdeildar HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




