Hluti 7 orkunotkun og lagnir: Kynningarfundur vegna breytinga á byggingarreglugerð

location-svg

Borgartún 21

14:00

Upplýsingar

location-svg

Borgartún 21

14:00

8

des.

Mánudaginn 8. desember nk. verðar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð er varða orkunotkun og lagnir kynntar. Fundurinn verður haldinn í sal HMS að Borgartúni 21, kl. 14:00. En einnig verður hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi

Skráning á viðburð

HMS boðar til kynningarfundar um breytingu á byggingarreglugerð er varðar hluta 7 um orkunotkun og lagnir. 

Á fundinum verða tillögur að breyttum hluta um orkunotkun og lagnir kynntar og í framhaldinu verður boðið upp á opið samtal þar sem hagaðilum gefst tækifæri að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri.

Fundurinn er liður í endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðar. Markmið endurskoðunarinnar er að gera reglugerðina einfaldari og skýrari með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og meira svigrúm til fjölbreyttra lausna.

Hluti 7 um orkunotkun og lagnir tekur efnislega til 13. og 14. hluta gildandi reglugerðar.

Drög að 7. hluta byggingarreglugerðarinnar um orkunotkun og lagnir ásamt greinargerð um breytingar verða birtar hér fyrir fundinn, einnig verður hægt að skila athugasemdum rafrænt.

Skráðu þig á póstlista

Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu verkefnisins geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:

  • komandi kynningar- og samráðsfundi,
  • birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
  • annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.

Skráning á póstlistann

Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.