Þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála á Suðurnesjum

location-svg

Hafnargata 57, 230 Reykjanesbær

11:45-12:45

Upplýsingar

location-svg

Hafnargata 57, 230 Reykjanesbær

11:45-12:45

20

nóv.

Föstudaginn 20. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSS opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Suðurnesjum. Fundurinn verður haldinn í Park inn/Library bistro, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ, kl. 11:45 og er opinn öllum.

Á fundinum verður meðal annars fjallað um atvinnuþróun í landsbyggðunum, stöðuna á íbúðamarkaði og stöðu innleiðingar nýs viðmóts byggingarleyfa og næstu skref við þróun viðmótsins. Einnig það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum, eftirlitsmálum í mannvirkjagerð og tillögum að breytingum.

Dagskrá

Staðan í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar

Íbúðauppbygging og framtíðarhorfur

Jón Örn Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS

Mannvirkjaskrá

Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS

Skipulagsmál – helst á döfinni

Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS

Breytt byggingareftirlit og einföldun regluverks

Jörundur Ragnar Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits mannvirkja hjá HMS

Fundarstjóri verður Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS.

 

Húsið opnar kl. 11:30 og verður boðið upp á léttar veitingar meðan á fundi stendur. Fundargestum er boðið samtal við frummælendur eftir fundinn.

Við bjóðum öll velkomin á fundinn og hlökkum til að sjá ykkur sem flest.