Vegvísir um brunabótamat - bætt framkvæmd brunabótamats
Borgartún 21
9:00
Upplýsingar
Borgartún 21
9:00
26
júní
HMS boðar til opins fundar fimmtudaginn 26. júní klukkan 9:00. Tilefni fundarins er útgáfa Vegvísis að brunabótamati 2025 - bætt framkvæmd brunabótamats. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS í Borgartúni 21.
Upptaka af fundinum
HMS tók yfir málaflokk brunabótamats árið 2022 og er tilgangur Vegvísisins um bætt brunabótamat að fara yfir þá reynslu og þekkingu sem HMS hefur öðlast, stöðu brunabótamats á Íslandi, samfélagslegt mikilvægi þess, lærdóminn af endurmati brunabótamats í Grindavík og áhrif brunabótamats á tekjur ríkissjóðs.
Auk HMS munu Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra og Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS vera með erindi.
Dagskrá
- Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Tryggvi Már Ingvarsson, framkvæmdastjóri fasteigna HMS
- Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS
Fundarstjóri: Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS