10. nóvember 2026

Áætla að byggja þurfi um 250 nýjar íbúðir á ári til að mæta íbúðaþörf á Norðurlandi eystra

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Sveitarfélögin á Norðurlandi eystra búast við um 400 nýjum íbúum á ári næstu 10 árin
  • Áætluð lóðaúthlutun Akureyrarbæjar næstu 10 ár er umfram áætlaða þörf
  • Fyrirhugaðar breytingar á byggingareftirliti fela meðal annars í sér áhættumiðað eftirlit og notkunareftirlit

Hægt hefur á fólksfjölgun á Norðurlandi eystra undanfarin ár, líkt og annars staðar á landinu, en sveitarfélögin á svæðinu gera ráð fyrir áframhaldandi og stöðugri fólksfjölgun á næstu árum. Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur ekki haldið í við þá íbúðaþörf sem skapast hefur í landshlutanum undanfarin ár vegna fólksfjölgunar, en miðað við húsnæðisáætlanir þarf að byggja um 250 nýjar íbúðir á ári hverju til að mæta áætlaðri íbúðaþörf næstu árin. Þetta kom fram á vel sóttum fundi sem HMS og Tryggð byggð héldu á skrifstofu HMS á Akureyri mánudaginn 9. nóvember.

Upp­bygg­ing á Ak­ur­eyri, mann­virkja­skrá, skipu­lags­mál, breytt bygg­ing­ar­eft­ir­lit og bruna­varn­ir til um­ræðu

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, fjallaði um stöðu íbúðauppbyggingar í bænum. Í erindi sínu ræddi Berglind meðal annars yfirstandandi og fyrirhugaða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í bænum. Hún fjallaði jafnframt um þær forsendur sem Akureyrarbær leggur til grundvallar spá um íbúðaþörf í húsnæðisæáætlun sinni.

Aðrir frummælendur á fundinum voru úr röðum HMS. Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár, kynnti þróun mannvirkjaskrár og Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats, fór yfir það helsta sem er á döfinni í skipulagsmálum.

Jörundur Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits, fjallaði um fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð. Í erindi sínu fjallaði Jörundur meðal annars um tillögur að breyttu byggingareftirliti með áhættumiðuðu eftirliti og notkunareftirliti sem yrði í höndum óháðra skoðunarstofa.

Helga Einarsdóttir, teymisstjóri brunavarna og slökkviliða, fjallaði um starfsemi slökkviliða og þá ábyrgð sem sveitarfélög bera í þeim efnum. Í mælaborði slökkviliða á vef HMS má finna ýmsar fróðlegar upplýsingar um slökkvilið á Íslandi og starfsemi þeirra.

Gera ráð fyr­ir stöð­ugri fólks­fjölg­un á Norð­ur­landi eystra næstu árin  

Kristín Amalía Líndal, hagfræðingur, fjallaði um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur á Norðurlandi eystra. Norðurland eystra er þriðji fjölmennasti landshlutinn á eftir höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi og þar hefur íbúum fjölgað um 11% frá árinu 2015. Samsetning fólksfjölgunar á svæðinu hefur þó breyst nokkuð undanfarin ár.

Eftir langt tímabil búferlaflutninga fólks frá Norðurlandi eystra til annarra svæða innanlands hafa fleiri sest að í landshlutann heldur en hafa flutt frá honum undanfarin ár. Aðflutningur fólks erlendis frá hefur hins vegar einnig aukist að umfangi, en hann var mest áberandi á árunum 2016 og 2017 þegar mikill uppgangur var í ferðaþjónustu og vinnuaflsfrekar framkvæmdir við uppbyggingu kísilversins á Bakka stóðu yfir.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra skiluðu og staðfestu húsnæðisáætlun fyrir árið 2026. Samkvæmt þeim gera sveitarfélögin ráð fyrir áframhaldandi og stöðugri fólksfjölgun í landshlutanum næstu 10 ár. Miðspá um fólksfjölgun hljóðar upp á um 400 nýja íbúa á ári. Miðað við fólksfjölgun á Norðurlandi eystra á fyrri helmingi þessa árs má áætla að endanleg fjölgun á árinu lendi einhverstaðar á milli lágspár og háspá sveitarfélaganna.

Fólksfjölgun og breytingar á meðalheimilisstærð eru lykilbreytur þegar kemur að mati á íbúðaþörf. Uppbygging undanfarin ár hefur ekki haldið í við þá nýju íbúðaþörf sem skapast hefur í landshlutanum undanfarin ár, þó hægt hafi á fólksfjölgun að undanförnu.

Miðað við húsnæðisáætlanir er þörf á rúmlega 250 nýjum íbúðum á hverju ári næstu 10 árin á Norðurlandi eystra. Á fyrstu 10 mánuðum ársins urðu 150 nýjar íbúðir fullbúnar á svæðinu og því vantar talsvert upp á miðspánna. Þegar upp er staðið ræðst raunveruleg íbúðaþörf þó af raunverulegri fólksfjölgun á árinu. Það þarf því að bíða og sjá hvernig tekst að mæta íbúðaþörf á Norðurlandi eystra í ár.

Næsti fund­ur er á Akra­nesi í vik­unni

Næsti fundur HMS og Tryggðrar byggðar verður á Akranesi föstudaginn 13. nóvember kl. 11:45. Síðar í nóvember eru fyrirhugaðir fundir á Sauðárkróki, Selfossi, í Reykjanesbæ og Reykjavík. Fundirnir eru opnir öllum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS