5. nóvember 2026

Landeigendur geta bókað fund vegna Áætlunar eignamarka

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Landeigendur geta bókað fund með sérfræðingum HMS til að ræða tillögur að eignamörkum og koma á framfæri athugasemdum
  • Fundir verða haldnir á Egilsstöðum 9.–10. nóvember og í Reykjavík 16.–17. nóvember
  • Hægt er að bóka 15–30 mínútna fund með tölvupósti á jardir@hms.is eða í síma 440-6400

Landeigendum gefst kostur á að bóka fund með sérfræðingum HMS vegna Áætlunar eignamarka. Á fundi er hægt að fá nánari upplýsingar um verkefnið, skoða tillögur að eignamörkum og koma á framfæri athugasemdum eða upplýsingum sem kunna að skipta máli.

Sérfræðingar HMS verða til viðtals á eftirfarandi stöðum:

  • Egilsstaðir 9.–10. nóvember: Austurbrú, Vonarland, Egilsstaðir
  • Reykjavík 16.–17. nóvember: Skrifstofa HMS, Borgartún 21, Reykjavík

Utan þessara dagsetninga er einnig hægt að koma við á skrifstofu HMS á Akureyri, Hafnarstræti 107, og ræða við sérfræðinga verkefnisins. Við mælum með að fólk geri boð á undan sér.

Boðið er upp á 15–30 mínútna fundi með hverjum landeiganda. Til að nýta tímann sem best eru landeigendur hvattir til að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn og hafa meðferðis þær upplýsingar eða gögn sem þeir telja að geti skipt máli.

 

Hægt er að bóka fund með því að senda tölvupóst á jardir@hms.is eða hringja í 440-6400.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS