4. nóvember 2026

Húsnæðisbætur voru skertar hjá rúmlega helmingi heimila í október

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS greiddi tæpan milljarð króna í húsnæðisstuðning til 18 þúsund heimila í október
  • Rúmlega helmingur heimilanna fengu skertar húsnæðisbætur af ýmsum ástæðum
  • Skerðing húsnæðisbóta er misalgeng eftir tegund húsnæðis

HMS greiddi 966 milljónir króna í húsnæðisstuðning til 18.087 heimila á leigumarkaði vegna leigu í október 2026. Rúmlega helmingur þeirra fékk greiddar skertar húsnæðisbætur, en ástæður skerðingar má ýmist rekja til hárra tekna, mikilla eigna eða lágrar leigufjárhæðar. Skerðing húsnæðisbóta er algengust meðal heimila sem leigja húsnæði í sambýlum fyrir fólk með fötlun, en er sjaldgæfari meðal námsmanna sem leigja húsnæði á stúdentagörðum.

Skerð­ing hús­næð­is­bóta er mis­al­geng eft­ir teg­und hús­næð­is

Af þeim 18.087 heimilum sem fengu greiddar húsnæðisbætur í október fengu 53% heimila greiddar skertar húsnæðisbætur á meðan 47% fengu greiddar óskertar bætur.

Hlutfall heimila sem fengu skertar bætur er þó mishátt eftir tegund húsnæðis. Um 70% þeirra sem leigja húsnæði í sambýlum fyrir fólk með fötlun fengu skertar bætur í október. Leiguverð í sambýlum er oft lægra en fullar húsnæðisbætur og þar sem húsnæðisbætur geta ekki numið hærri fjárhæð en 75% af heildarleiguverði getur lágt leiguverð leitt til skerðingar á greiddum húsnæðisbótum.

Að öðru leyti er meginástæða bótaskerðingar almennt að umsækjendur hafa tekjur eða eignir umfram neðri skerðingarmörk í húsnæðisbótakerfinu. Skerðing vegna tekna eða eigna er til að mynda algeng meðal leigjenda sem leigja húsnæði í eigu ríkis eða sveitarfélaga, þar sem 57% heimila fengu skertar húsnæðisbætur. Sambærilegt hlutfall leigjenda sem leigja húsnæði í einkaeigu fengu skertar húsnæðisbætur vegna tekna eða eigna.

Lægst var hlutfall skerðingar meðal heimila sem leigja húsnæði á heimavistum og námsgörðum, eða um 31%. Námsmenn eru að jafnaði með lágar tekjur á meðan á skólaárinu stendur sem kann að skýra lágt hlutfall skerðingar meðal þeirra. Af þeim sem leigja húsnæði á áfangaheimilum var hlutfall heimila sem fengu skertar húsnæðisbætur jafnframt í lægri kantinum, en meginástæða bótaskerðingar í þeim hópi voru tekjur og eignir umfram neðri skerðingarmörk.

 

Tæp­ur millj­arð­ur króna var greidd­ur í hús­næð­isstuðn­ing vegna leigu í októ­ber

Þann 30. október síðastliðinn greiddi HMS um 966 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í október. Greiðslurnar miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.

Stærsti hluti greiðslna í október var vegna almennra húsnæðisbóta, en HMS greiddi tæpar 932 milljónir króna til um 18.087 heimila í almennar húsnæðisbætur.

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í október voru greiddar tæpar 34 milljónir króna til 1.128 heimila í Kópavogi og 79 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.

Tilraunaverkefnið hefur gefið góða raun með aukinni skilvirkni í afgreiðslu umsókna og einfaldara ferli gagnvart leigjendum. Í vegvísi að markvissari húsnæðisstuðningi við leigjendur lagði HMS til að kerfi almennra húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings verði samþætt í eitt heildstætt kerfi. Fyrsta skrefið verði að sameina umsóknarferli og eftir atvikum umsóknarkerfi þannig að hægt verði að sækja um allan stuðning á einum stað.  

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS