3. nóvember 2026
Skýrari ákvæði um algilda hönnun og öryggi í drögum að nýrri byggingarreglugerð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Skyld ákvæði um aðgengi og öryggi sameinuð í einn hluta
- Algild hönnun sett fram sem meginregla með afmörkuðum undanþágum
- Aukið svigrúm til faglegs mats og mismunandi lausna
Í drögum að nýjum 4. hluta byggingarreglugerðar um algilda hönnun og öryggi er lagt til að ákvæði um aðgengi og örugga notkun mannvirkja og lóða þeirra verði sameinuð og framsetning þeirra einfölduð. Markmiðið er að skapa skýrari heild, draga úr endurtekningum og gera grunnkröfur reglugerðarinnar aðgengilegri.
Nýr 4. hluti tekur efnislega einkum til ákvæða í 6. hluta gildandi byggingarreglugerðar um aðkomu, umferðarleiðir og innri rými mannvirkja, 7. hluta um útisvæði við mannvirki og 12. hluta um öryggi við notkun. Í drögunum er efninu skipað í fimm kafla sem fjalla um:
- Almenn ákvæði um algilda hönnun og öryggi
- Aðkomu og útisvæði
- Innra fyrirkomulag bygginga
- Umferð milli hæða
- Kröfur út frá fyrirhugaðri notkun og sérákvæði
Ein helsta breytingin felst í skýrari framsetningu meginreglunnar um algilda hönnun. Í drögunum er meginreglan sett fram með almennum hætti fyrir allar byggingar, aðkomu að þeim og útisvæði, en þau tilvik þar sem heimilt er að víkja frá henni eru tilgreind sérstaklega. Samkvæmt greinargerðinni er breytingunni ætlað að skýra gildissvið krafnanna og samræmist þessi framsetning því sem almennt tíðkast á Norðurlöndum. Áhersla er lögð á að hönnun taki mið af ólíkum þörfum fólks og stuðli að sjálfstæði notenda.
Þá er lagt til að nánari tæknileg viðmið og dæmi um útfærslur verði færð í leiðbeiningar þar sem því verður við komið. Grunnkröfur um aðgengi og öryggi verða áfram í reglugerðinni, en með breytingunum er leitast við að skapa aukið svigrúm til faglegs mats og ólíkra lausna sem uppfylla þær kröfur.
Drögin eru hluti af endurskoðun byggingarreglugerðarinnar. Drög að 4. hluta, greinargerð og upptaka af kynningarfundi eru aðgengileg á vefsíðu byggingarreglugerðar. Hagaðilar eru hvattir til að kynna sér drögin og greinargerðina og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Athugasemdir má senda rafrænt á byggingarreglugerd@hms.is.
Skráðu þig á póstlista
Þau sem hafa áhuga á að fylgjast áfram með framvindu verkefnisins geta skráð sig á póstlista HMS. Þau sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




