2. nóvember 2026

Brýn þörf á bættri æfingaaðstöðu fyrir slökkvilið landsins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Núverandi æfingaaðstaða slökkviliða er verulega takmörkuð og uppfyllir ekki öll hæfniviðmið Brunamálaskólans
  • Lagt er til að byggja upp eitt fullbúið æfingasvæði og fleiri svæði fyrir reglulega verklega þjálfun um land allt
  • Samræmd uppbygging og samstarf ríkis og sveitarfélaga er lykilatriði í að efla viðbragðsgetu slökkviliða og öryggi samfélagsins

Ný skýrsla samstarfshóps HMS og Félags slökkviliðsstjóra Íslands (FSÍ) um uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða sýnir að veruleg þörf er fyrir bættri aðstöðu til verklegrar þjálfunar slökkviliða hér á landi. Ekkert þeirra æfingasvæða sem eru til staðar býður upp á aðstöðu til þjálfunar fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða og öll þau hæfniviðmið sem lögð eru til grundvallar í námskrá Brunamálaskólans.

Skýrsla um uppbyggingu æfingasvæða slökkviliða

Samstarfshópurinn var stofnaður í kjölfar aðalfundar FSÍ á Akureyri í apríl 2025. Hópnum var falið að greina stöðu æfingasvæða slökkviliða og leggja fram tillögur að næstu skrefum við framtíðaruppbyggingu slíkra svæða á Íslandi.

Niðurstaða hópsins er skýr. Núverandi æfingaaðstaða er verulega takmörkuð og mjög misjöfn eftir landshlutum. Brýn þörf er á markvissri og samræmdri uppbyggingu sem tryggir slökkviliðum um land allt betra aðgengi að öruggri aðstöðu til reglulegrar þjálfunar og menntunar.

Æf­inga­að­staða for­senda mark­vissr­ar þjálf­un­ar

Viðeigandi æfingaaðstaða er forsenda þess að slökkviliðsmenn geti fengið þá verklegu þjálfun sem starfið krefst og geti æft reglulega við raunhæfar og krefjandi aðstæður. Takmarkað aðgengi að slíkri aðstöðu getur dregið úr möguleikum þeirra að viðhalda hæfni, haft áhrif á öryggi þeirra og viðbragðsgetu slökkviliða þegar neyðartilvik koma upp.

Slökkvilið gegna lykilhlutverki í viðbrögðum við eldsvoðum, mengunaróhöppum, slysum, náttúruhamförum og öðrum atburðum sem geta ógnað fólki, samfélagi og mikilvægum innviðum. Uppbygging æfingaaðstöðu snýst því ekki aðeins um þjálfun slökkviliða heldur einnig um að styrkja viðbragðsgetu og öryggi samfélagsins í heild.

Þrír flokk­ar æf­inga­svæða og meg­innið­ur­staða grein­inga

Í skýrslunni er lagt til að æfingasvæði verði skilgreind í þrjá flokka eftir umfangi og aðstöðu, svæði A, B og C.

·       Svæði A er fullbúið æfingasvæði fyrir sérhæfða og fjölbreytta þjálfun

·       Svæði B þjónar reglulegri verklegri þjálfun og staðbundnum námskeiðum

·       Svæði C styður við einfaldari grunn- og viðhaldsþjálfun í heimahéraði.

Flokkunin gerir kleift að tengja þjálfunarþætti og hæfniviðmið við viðeigandi aðstöðu og styður þannig samræmda kennslu og þjálfun. Greining á fjarlægðum og aðgengi sýnir að eitt fullbúið æfingasvæði tryggir ekki jafnt aðgengi, en jafnframt er hvorki raunhæft né hagkvæmt að byggja fullbúna aðstöðu á mörgum stöðum.

Meginniðurstaðan er því að byggja upp eitt fullbúið svæði A og nokkur dreifð svæði B fyrir reglulega verklega þjálfun og staðbundin námskeið. Einfaldari svæði C geti jafnframt stutt við grunn- og viðhaldsþjálfun slökkviliða í heimahéraði.

Með þessu fyrirkomulagi verði leitast við að skapa jafnvægi milli sérhæfðrar aðstöðu, reglulegrar þjálfunar og aðgengis slökkviliða um land allt.

Fjór­ar meg­in­til­lög­ur um næstu skref:

Samstarfshópurinn leggur fram fjórar megintillögur um framtíðaruppbyggingu æfingasvæða:

  1. Byggja upp samræmt kerfi æfingasvæða á landsvísu, meðal annars með einu fullbúnu svæði A og dreifðum svæðum B.
  2. Skilgreina ábyrgð og tryggja uppbyggingu, rekstur og fjármögnun með samstarfi ríkis, sveitarfélaga, slökkviliða og HMS.
  3. Efla samstarf og samnýtingu með öðrum viðbragðsaðilum, svo sem lögreglu, Landhelgisgæslu, sjúkraflutningum, björgunarsveitum og almannavörnum.
  4. Innleiða gæðakerfi og samræmd viðmið fyrir aðstöðu, búnað, öryggi, nýtingu og viðhald æfingasvæða.

Sam­starf rík­is og sveit­ar­fé­laga lyk­il­at­riði

Uppbygging æfingasvæða kallar á sameiginlega nálgun ríkis og sveitarfélaga þar sem ábyrgð á uppbyggingu, rekstri og fjármögnun er skýr. Sveitarfélög bera ábyrgð á starfsemi slökkviliða en ríkið ábyrgð á rekstri Brunamálaskólans. Æfingasvæði sem nýtast bæði slökkviliðum og verklegri kennslu skólans eru því sameiginlegir innviðir ríkis og sveitarfélaga.

Samstillt uppbygging getur tryggt betri nýtingu fjármuna og veitt slökkviliðum um land allt bætt aðgengi að öruggri og fullnægjandi æfingaaðstöðu.

Samræmt kerfi æfingasvæða er grunnforsenda þess að slökkvilið geti viðhaldið hæfni sinni og brugðist við með öruggum og samræmdum hætti þegar mest á reynir. Uppbyggingin er því langtímafjárfesting í viðbragðsgetu slökkviliða og öryggi samfélagsins í heild.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS