4. nóvember 2026
HMS og Hagstofa vinna að bættum upplýsingum um leiguverð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS hefur uppfært leiguverðsjá til að bæta gæði og auka samræmi við Hagstofu Íslands í meðhöndlun gagna um leigumarkaðinn
- Samhliða uppfærslu var útreikningum í leiguverðsjá breytt til að taka betur mið af samsetningu leigumarkaðarins
- Upplýsingar í leiguverðsjá hafa verið uppfærðar afturvirkt þannig að þróun leiguverðs yfir tíma byggi á samræmdri aðferð
Ný og uppfærð leiguverðsjá HMS hefur verið tekin í notkun. Hægt er að nálgast hana með því að smella á hnappinn fyrir neðan, en uppfærslan er afrakstur samvinnu HMS og Hagstofu til að bæta enn frekar gæði og samanburðarhæfni í upplýsingum um þróun leiguverðs á Íslandi.
Leiguverðsjá HMS
Aukið samræmi í upplýsingum um leigumarkaðinn
Á síðustu misserum hefur reiknuð og greidd húsaleiga í vísitölu neysluverðs hækkað hraðar en meðalleiga á fermetra í leiguverðsjá HMS og vísitala leiguverðs. HMS hefur áður bent á þetta ósamræmi, en mismunandi þróun er að miklu leyti vegna þess að grundvallarmunur er á aðferðarfræði og undirliggjandi gögnum hjá Hagstofu og HMS.
HMS og Hagstofa hafa undanfarið unnið saman við að auka enn frekar samræmi og gæði gagna um leigumarkaðinn. Í kjölfar þeirrar samvinnu hefur HMS fært verklag sitt við gagnahreinsun nær verklagi Hagstofu. Meiri áhersla er nú á að sigta út samninga sem ekki eru taldir gefa rétta mynd af markaðsverði.
Í eldri útgáfu leiguverðsjár var litið til gildra samninga í leiguskrá, að undanskildum samningum sem álitnir eru útlagar með tilliti til stærðar, leiguverðs og fermetraverðs. Auk þess voru undanskildir samningar þar sem meira en 5 ár voru liðin frá upphafsdegi samnings eða síðustu breytingu á samningi.
Í nýrri útgáfu leiguverðsjár er áfram miðað við framangreinda útlagahreinsun að viðbættum tveimur síum. Leiguverðsjá tekur nú einungis til leigusamninga þar sem heildarflatarmál gildra leigusamninga á tiltekna leigueiningu á hverjum tíma rúmast innan skráðs flatarmáls leigueiningarinnar samkvæmt fasteignaskrá. Í því samhengi eru nýrri samningar teknir fram yfir eldri samninga.
Jafnframt tekur leiguverðsjá nú einungis til nýjasta samnings sem tiltekinn leigjandi gerir um tiltekna leigueiningu á hverjum tíma í þeim tilvikum þar sem fleiri en einn samningur er í gildi. Með framangreindum viðbótarsíum er leitast við að fá betri mynd af þróun leiguverðs gildra leigusamninga.
HMS minnir á að samkvæmt húsaleigulögum er leigusölum skylt að afskrá leigusamninga sem fallið hafa úr gildi. Afskráning samninga sem eru ekki lengur í gildi er afar mikilvæg til að tryggja að upplýsingar sem miðlað er úr leiguskrá endurspegli raunverulega stöðu á leigumarkaði.
Leiguverðsjá uppfærð til að taka betur mið af samsetningu leigumarkaðarins
Í nýrri útgáfu leiguverðsjár er tekið tillit til mismunandi fjölda leigusamninga í mismunandi flokkum þegar meðalfermetraverð leigusamninga er reiknað. Fyrri útgáfa leiguverðsjár sýndi óvigtað meðaltal af fermetraverði gildra samninga um íbúð eftir stærð, herbergjafjölda staðsetningu, aldri húsnæðis og gerð leigusamnings, en tók tillit til þessara þátta í útreikningum á fermetraverði nýrra samninga.
Leiguverðsjáin byggir á öllum samningum sem eru skráðir í leiguskrá HMS og teljast tækir til tölfræðivinnslu. Í leiguverðsjánni er hægt að athuga meðalleiguverð á fermetra í nýjum samningum og öllum gildum samningum um allt land.
Um 25 þúsund leigusamningar liggja nú til grundvallar útreikningum á fermetraverði gildra samninga í leiguverðsjá HMS fyrir októbermánuð. Þó eru rúmlega 35 þúsund leigusamningar í gildi samkvæmt leiguskrá, en HMS undanskilur hluta þeirra við verðútreikninga ef samningar teljast ekki endurspegla eðlilega markaðsvirkni.
Leiguverðsjá er í stöðugri þróun og HMS fagnar öllum ábendingum sem geta orðið til þess að bæta upplýsingagjöf um leigumarkað og önnur málefnasvið HMS.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




