20. febrúar 2026

Nýjar íbúðir seljast í auknum mæli undir auglýstu söluverði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Þrjár af hverjum fjórum íbúðum seldust á verði sem var lægra en auglýst söluverð í desember síðastliðnum
  • Færst hefur í aukana að nýjar íbúðir seljist undir auglýstu söluverði á allra síðustu mánuðum
  • Hlutfall íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði er enn lægra en það var fyrir 2020

Hlutfall íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði hefur leitað upp á við undanfarna mánuði á sama tíma og hægt hefur á verðhækkunum og kólnað hefur á markaðnum að mati fasteignasala. Þetta kemur fram í nýjustu mánaðarskýrslu HMS fyrir febrúarmánuð, sem nálgast má hér.

Í desember síðastliðnum seldust tæplega 74% íbúða á landsvísu á verði sem var lægra en auglýst söluverð. Á allra síðustu mánuðum hefur jafnframt orðið áberandi aukning í hlutfalli nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallið hefur þó oft verið hærra, sér í lagi áður en vextir lækkuðu í kjölfar heimsfaraldurs.

Und­ir­boð fær­ast í auk­ana á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Um þrjár af hverjum fjórum íbúðum seldust undir auglýstu söluverði í desember, en hlutfall íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði hefur farið vaxandi undanfarin misseri. Hlutfallið hríðlækkaði á lágvaxtatímabilinu 2020-2022 en tók að hækka á ný með hækkandi vöxtum og hertum lánþegaskilyrðum. Eldsumbrotum nálægt Grindavík fylgdu aukin umsvif og hlutfall íbúða sem seldist undir ásettu verði fór lækkandi fram að haustinu 2024, en síðan þá hefur hægt á íbúðaverðshækkunum og undirboð færst í aukana á ný.

Á höfuðborgarsvæðinu hefur hlutfall íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði farið hækkandi frá miðju ári 2024 og í desember síðastliðnum var hlutfallið komið upp í 70% á svæðinu. Hlutfallið var þó nokkuð hærra (75-80%) á árunum 2013 til 2019, að frátöldu árinu 2017.

Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og annars staðar á landsbyggðinni selst yfirleitt hærra hlutfall íbúða undir ásettu verði samanborið við á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur þó ekki orðið skýr hækkun á hlutfallinu undanfarið ár líkt og á höfuðborgarsvæðinu.

 

Nýj­ar íbúð­ir selj­ast í aukn­um mæli und­ir aug­lýstu verði

Rúmlega helmingur þeirra nýju íbúða sem seldust á höfuðborgarsvæðinu í desember síðastliðnum seldust á verði sem var lægra en auglýst söluverð. Hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað talsvert á allra síðustu mánuðum og hefur ekki mælst hærra á svæðinu síðan um mitt ár 2023. Á þeim tíma hafði hægt verulega á íbúðaverðshækkunum samhliða hækkandi vaxtastigi, áður en Grindavíkuráhrifin fóru að segja til sín.

Myndin hér að neðan sýnir þriggja mánaða hlaupandi meðaltal á hlutfalli íbúða sem seljast undir auglýstu söluverði. Samkvæmt henni fór hlutfallið fyrir nýjar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu lægst niður í 25% um mitt ár 2024, en hækkaði svo á haustmánuðum sama árs. Á fyrstu þremur ársfjórðungum 2025 hélst hlutfallið stöðugt í kring um 35%, en hefur hækkað hratt á allra síðustu mánuðum.

Um þrjár af hverjum fjórum eldri íbúðum á höfuðborgarsvæðinu seldust undir auglýstu söluverði í desember síðastliðnum, en hlutfallið hefur leitað upp á við frá miðju ári 2024 þegar Grindavíkuráhrifin náðu hámarki. Hlutfallslega færri íbúðir seljast þó undir auglýstu söluverði nú samanborið við á árinu 2019.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS