18. febrúar 2026
19. febrúar 2026
Mánaðarskýrsla HMS febrúar 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Mánaðarskýrsla HMS fyrir febrúar 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að virkni á fasteignamarkaði hafi verið töluverð í fyrra þegar þrettánda hver íbúð á landinu gekk kaupum og sölu. Á undanförnum mánuðum hefur hins vegar kólnað á markaðnum og á höfuðborgarsvæðinu hefur færst í aukana að íbúðir seljist undir auglýstu söluverði. Áfram hægir á verðhækkunum á leigumarkaði og samþykktum umsóknum um húsnæðisbætur hefur fjölgað talsvert undanfarið samhliða rýmkunum á skerðingarmörkum vegna tekna og eigna.
Mánaðarskýrsla HMS
Myndir að baki mánaðarskýrslu
Fleiri íbúðir seljast undir auglýstu söluverði
Fasteignamarkaðurinn sýnir áfram merki kólnunar, en samhliða minni íbúðaverðshækkunum og vaxandi framboði íbúða til sölu seljast hlutfallslega fleiri íbúðir á höfuðborgarsvæðinu undir auglýstu söluverði. Þetta er í samræmi við niðurstöður úr könnun HMS meðal fasteignasala, en þeir telja nær allir að verðþróun á markaðnum sé ýmist stöðug eða að verð fari lækkandi. Vísitala íbúðaverðs hefur nú lækkað að raunvirði á ársgrundvelli undanfarið hálft ár.
Talsverð virkni var á fasteignamarkaði árið 2025 þegar tæplega 12 þúsund eignir gengu kaupum og sölu, eða um það bil þrettánda hver íbúð á landinu. Undanfarinn áratug hefur virkni verið hlutfallslega mest á Suðurnesjum, þar sem fólksfjölgun hefur verið kröftug og íbúðauppbygging mikil. Innan höfuðborgarsvæðisins hefur virknin verið hlutfallslega mest í Garðabæ og Hafnarfirði þar sem mikið hefur verið byggt á undanförnum árum.
Samþykktum umsóknum um húsnæðisbætur fjölgar með rýmri skerðingarmörkum
Á leigumarkaði heldur áfram að hægja á verðhækkunum en vísitala leiguverðs hefur lækkað tvo mánuði í röð. Á undanförnum 12 mánuðum hefur leiguverð lækkað lítillega að raunvirði.
Skerðingarmörk húsnæðisbóta vegna tekna og eigna hafa hækkað nokkrum sinnum á undanförnum árum sem hefur leitt til þess að fleiri heimili eiga rétt á húsnæðisbótum. Samhliða hefur samþykktum umsóknum um húsnæðisbætur fjölgað markvert á milli ára.
Lífeyrissjóðir umsvifameiri en bankar í fyrra
Lánamarkaðurinn hefur einkennst af miklum umsvifum lífeyrissjóða undanfarin misseri, en tæplega 75% hreinna nýrra íbúðalána til heimila á árinu 2025 voru tekin hjá þeim. Þetta er í fyrsta skiptið síðan árið 2019 sem hreinar nýjar lánveitingar banka til heimila eru minni en lífeyrissjóða.
Lántaka eykst í byggingariðnaði en minnkar annars staðar
Byggingamarkaðurinn sýnir jafnframt merki kólnunar, en starfsfólki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fjölgað lítið sem ekkert á meðan atvinnulausum hefur fjölgað og lausum stöfum hefur fækkað. Hrein ný lántaka í byggingargeiranum jókst um 70% á milli ára á meðan hún dróst saman um 21% í öðrum atvinnugreinum. Útistandandi lán til byggingariðnaðarins hafa jafnframt aukist á síðustu mánuðum samhliða dræmri sölu nýrra íbúða sem getur leitt til skuldaaukningar vegna uppsöfnunar áfallinna vaxta.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



