18. febrúar 2026

Vísitala leiguverðs lækkaði um 0,3 prósent í janúar 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði annan mánuðinn í röð
  • Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 4,97 prósent
  • Þetta er í fyrsta skipti síðan maí 2023 sem tólf mánaða hækkun á vísitölu leiguverðs hefur verið undir verðbólgu

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 124,5 stig og lækkaði um 0,3 prósent á milli mánaða í janúar. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur vísitalan hækkað um 4,97 prósent á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 2,36 prósent. Leiguverð hefur því lækkað lítillega að raunvirði undanfarna tólf mánuði, um 0,18 prósent.

Mælaborð fyrir vísitölur HMS

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo janúargildi hennar tekur mið af leigusamningum í janúar og desember.

Leigu­verð lækk­ar að raun­virði í fyrsta skipti í tvö og hálft ár

Síðastliðna 12 mánuði hefur leiguverð lækkað um 0,18 prósent að raunvirði, en þetta er fyrsta skiptið sem 12 mánaða raunbreyting vísitölu leiguverðs mælist neikvæð síðan í maí 2023. Leiguverð hafði fram að þessu hækkað umfram verðlag á ársgrundvelli samfellt frá miðju ári 2023, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan sem sýnir 12 mánaða raunverðshækkun vísitölu leiguverðs.

Mæla­­­­borð fyr­­­­ir vísi­­­­töl­­­­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Mælaborðið má finna á https://hms.is/gogn-og-maelabord/visitolur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS