16. febrúar 2026
17. febrúar 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 1,7 prósent á milli mánaða í janúar 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðaverð hækkaði um 1,7 prósent milli mánaða í janúar eftir að hafa staðið í stað eða lækkað undanfarna þrjá mánuði
- Vísitala íbúðaverðs er nú 0,18 prósent hærri en í október 2025
- Íbúðaverð hefur lækkað um 2,67 prósent að raunvirði undanfarið ár
Vísitala íbúðaverðs mældist 113,0 stig í janúar og hækkaði því um 1,7 prósent á milli mánaða eftir að hafa staðið í stað eða lækkað undanfarna þrjá mánuði. Vísitalan mældist 112,8 stig í október og nóvember í fyrra og er því 0,18 prósent hærri nú en fyrir fjórum mánuðum síðan.
Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.
Líkt og sjá má á töflunni hér að neðan hækkuðu allar undirvísitölur íbúðaverðs, þ.e. fyrir sérbýli og fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu og utan þess, á milli mánaða í janúar. Sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði mest, eða um 3,15 prósent að nafnvirði, á meðan fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkaði minnst, eða um 0,73 prósent. Undanfarið ár hefur fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu þó hækkað mest, eða um 2,97 prósent að nafnvirði, en fjölbýli á landsbyggð hefur hækkað minnst, eða um 0,61 prósent.
Vísitala íbúðaverðs fyrir desember 2025
| Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
|---|---|---|---|
| Íbúðaverð | 113,0 | 1,71% | 2,36% |
| Sérbýli á hbs. | 114,6 | 3,15% | 2,50% |
| Sérbýli á landsbyggð | 114,5 | 1,87% | 1,87% |
| Fjölbýli á hbs. | 110,8 | 0,73% | 2,97% |
| Fjölbýli á landsbyggð | 115,7 | 1,14% | 0,61% |
Raunverð íbúða lækkar hraðar
Íbúðaverð hækkaði um 2,36 prósent að nafnvirði á milli janúarmánaða 2025 og 2026, en árshækkunin nam 2,11 prósent í desember síðastliðnum. Verðbólga jókst þó töluvert á milli mánaða í janúar og því hefur raunverð íbúða haldið áfram að lækka. Íbúðaverð hefur nú lækkað um 2,67 prósent að raunvirði undanfarna 12 mánuði, samanborið við 2,27 prósent lækkun milli ára í desember síðastliðnum, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu íbúðaverðs, ásamt vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggð. Hægt er að nálgast mælaborðið með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




