15. apríl 2026

Nýjar leiðbeiningar um brunavarnir í jarðgöngum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Nýjar leiðbeiningar hafa verið útgefnar um brunavarnir í jarðgöngum. HMS vann leiðbeiningarnar í samstarfi við Vegagerðina. Leiðbeiningarnar eru unnar að beiðni þeirra ráðherra sem fara með brunavarnir og samgöngumál og eru settar fram á grundvelli 3. mgr. 24. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir.

Leiðbeiningar

Markmið leiðbeininganna

Markmið leiðbeininganna er að samræma sérstakar ráðstafanir til brunavarna í jarðgöngum og skýra verklag. Þær fela meðal annars í sér skilgreiningu á hlutverkum viðkomandi aðila, aðgreiningu kostnaðar og mótun ferlis fyrir brunavarnaráðstafanir í jarðgöngum.

Leiðbeiningarnar hafa farið í gegnum samráð með helstu hagsmunaaðilum en það eru Samgöngustofa, Félag slökkviliðsstjóra á Íslandi, Samband íslenskra sveitarfélaga, Vegagerðin, iðnaðarráðuneytið og félags- og húsnæðismálaráðuneytið.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS