15. apríl 2026

Slökkvilið landsins sinntu 716 útköllum á fyrsta ársfjórðungi 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • 716 útköll alls, þar af 81 vegna umferðaslysa.
  • 65 gróðureldar, óvenju hátt og oft af mannavöldum.
  • 116 eldar utan bygginga, flestir á suðvesturhorninu.

Slökkvilið landsins sinntu alls 716 útköllum á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þar af voru 81 útköll vegna umferðaslysa. Útköll vegna elds utan bygginga voru óvenju mörg eða 116 atvik og þar af voru 91 tilfelli á suðvesturhorni landsins. Á meðal verkefna slökkviliða voru 52 útköll vegna brunaviðvörunarkerfa þar sem ekki reyndist vera eldur, heldur fals boð þar sem viðvörunarkerfi fóru í gang án þess að hætta væri til staðar. Þetta kemur fram í gögnum útkallsskýrslugrunns slökkviliða, sem HMS hefur unnið tölfræðiupplýsingar úr á tímabilinu.

 

Út­köll vegna gróð­ur­elda óvenju mörg

Á fyrsta ársfjórðungi 2026 voru 65 útköll vegna gróðurelda sem er óvenju hátt á þessum árstíma. Samkvæmt gögnum frá Veðurstofu Íslands einkenndist tíðarfar í janúar og febrúar, af óvenju mildu og hægviðrasömu veðri, með litlum snjó og miklum þurrk fyrstu tvo mánuði ársins. Við þessar aðstæður er gróðurinn frostþurrkaður, sina og lúpína er mikil eldsmatur og því þarf að fara mjög varlega í umgengni við með eld. Af þessum 65 gróðureldum mátti rekja 18 atvik til flugelda, en 47 atvik voru að völdum íkveikju eða óvarlegrar meðferðar elds. Stærsti sinueldurinn var 22. febrúar sl. við Elliðavatn, þar sem 32 hektarar brunnu og vatnsból höfuðborgarsvæðisins var sett í hættu.  

Fyrstu viðbrögð við gróðureldum er að hringja í 112 og láta vita af staðsetningu. HMS gaf út nýja og uppfærða kennslubók um gróðurelda í júní 2025, sem er aðgengileg á vefnum Gróðureldar. Bókin er ætluð slökkviliðum landsins og öllum þeim sem koma að forvörnum, skipulagi eða viðbrögðum vegna gróðurelda.

 

116 út­köll vegna elds utan bygg­ing­ar

Eldur utan byggingar voru 116 sem er óvenju mikið og þarf að horfa til ársins 2017 til að finna sambærilega tölu, 78% tilfella voru á suðuvesturhorni landsins. Flestir brunar utan byggingar voru vegna elds í ruslagámum og síðan ökutækjum. Í 27 tilfellum, af þeim 116 sem skráð voru, var um íkveikju að ræða.

Slökkviliðin sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum þegar kemur að slökkvi- og björgunarþjónustu sveitarfélaga. Með lögbundnum verkefnum má nefna slökkvistarf, reykköfun, björgun á fastklemmdu fólki, t.d. vegna umferðarslysa, auk eldvarnareftirlit og forvarnir.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS