Brun­ar og slys af völd­um raf­magns

Brun­ar og slys af völd­um raf­magns

HMS aðstoðar lögregluyfirvöld við rannsóknir bruna og slysa af völdum rafmagns þegar þess er óskað. Jafnframt hefur stofnunin um árabil tekið saman árlegt yfirlit yfir þess konar bruna og slys. Stofnunin skráir bruna og slys af völdum rafmagns sem henni berast upplýsingar um en það er aðeins lítill hluti allra bruna og slysa af slíkum völdum í landinu.

Tilkynna um rafmagnsslys

Hér geta einstaklingar tilkynnt um rafmagnsslys

Tilkynna um rafmagnsslys

Hér geta einstaklingar tilkynnt um rafmagnsslys

Það er athyglisvert hversu stór hluti tjóna vegna rafmagns stafar af rangri notkun tækja sem hefði mátt forðast. Árangri á því sviði verður helst náð með fræðslu og upplýsingastarfi. Miðað við þann skaða sem samfélagið ber af rafmagnsbrunum er ljóst að fjármunum sem varið er til þessa málaflokks er vel varið.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er aðili að samtökum rafmagnsöryggisstofnana á Norðurlöndum, Nordisk komité for samordning av elektriske sikkerhetsspörsmål (NSS). Innan samtakanna er starfandi samstarfshópur „NSS Analyse“ sem sér um samræmda skráningu slysa og tjóna af völdum rafmagns.

Samnorræn skilgreining á rafmagnsbruna er:
Sérhvert atvik, þar sem rafstraumur hefur beint eða óbeint orsakað bruna, sem leiðir til tjóns á eignum eða slysa á fólki er rafmagnsbruni. Til þess að um rafmagnsbruna sé að ræða þarf rafmagnshluti þess búnaðar sem olli brunanum einnig að hafa valdið tjóni á öðrum búnaði.

Samnorræn skilgreining á rafmagnsslysi er:
Sérhvert atvik þar sem rafstraumur hefur valdið því að einstaklingur hefur beint eða óbeint slasast af ljósboga eða við að fá rafstraum í gegnum sig.

Leið­bein­ing­ar vegna bruna­rann­sókna

Sérfræðingar Rafmagnsöryggissviðs Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar veita lögregluembættum á öllu landinu aðstoð þegar þau telja sig þurfa á því að halda. Samt er mjög mikilvægt að áðurnefnd yfirvöld geri sér grein fyrir hvers eðlis orsök bruna er, áður en óskað er aðstoðar. Lögregluembættin geta einnig sett sig í samband við Mannvirkjastofnun eftir að þau hafa skoðað vettvang og metið í samráði við hana hvort þörf er á aðstoð.

Lögregla getur sent gögn til rannsóknar til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Það geta verið rafmagnstæki, lausataugar, fjöltengi eða hlutar úr raflögnum bygginga. Ljósmyndir af brunavettvangi eru einnig ómetanleg rannsóknargögn. Ljósmyndir hjálpa til að gefa heildarmynd af þeim gögnum sem eru til skoðunar. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun rannsakar þau gögn sem henni berast og gefa viðkomandi aðila skýrslu.

Mjög mikilvægt er að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fái upplýsingar um bruna eða slys af völdum rafmagns frá lögregluyfirvöldum og öðrum. Haldið er utan um tölfræðiupplýsingar um fjölda bruna vegna rafmagns, þ.e. vegna rangrar notkunar rafmagnstækja, vegna bilunar í rafmagnstækjum og vegna bilunar í raflögnum. Einnig eru þessar upplýsingar flokkaðar eftir notkunarstað og tegund notkunar. Þá er Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar í norrænu samstarfi um upplýsingaöflun vegna bruna og slysa af völdum rafmagns.

Þegar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefur móttekið rannsóknargögn eru þau skráð í sýnaskrá og geymd í eitt ár. Þeim er svo fargað eða komið til skila í samráði við viðkomandi lögregluyfirvöld, tryggingafélag eða eiganda tækis.