3. maí 2024

Grindvíkingar greiða að jafnaði hærri leigu en aðrir á leigumarkaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Þetta kemur fram í upplýsingum úr Leiguskrá HMS.

Í kjölfar atburðarásar í Grindavík á síðasta ári hefur HMS úthlutað sértækan húsnæðisstuðning til Grindvíkinga til að verða sér úti um leiguhúsnæði. Styrkurinn fer eftir fjölda heimilismanna og getur numið allt að 352 þúsund krónum á mánuði.

Um 880 heimili hafa fengið húsnæðisstyrkinn frá nóvember á síðasta ári, en þar af eru um 520 þeirra í leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki eru um 270 heimili í leiguíbúðum á Suðurnesjum og 90 heimili í leiguíbúðum annars staðar á landinu.

Í desember síðastliðnum opnuðu stjórnvöld Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur sem átti að hjálpa þeim að finna tímabundið leiguhúsnæði. Frá opnun hafa rúmlega 200 leigusamningar verið gerðir í gegnum Leigutorg, en það samsvarar einungis um 22 prósentum af heildarfjölda leigusamninga til Grindvíkinga.

Á myndinni hér að neðan má sjá meðalleiguverð Grindvíkinga og almenns leigumarkaðar eftir algengustu svæðunum. Myndin sýnir að leiguverð Grindvíkinga á ákveðnum svæðum er að meðaltali 20 prósent hærra en á almennum leigumarkaði.  Mestur er munurinn á Suðurlandi, þar sem Grindvíkingar borga að meðaltali 32 prósent hærri leigu, og í Hafnarfirði og Garðabæ, þar sem munurinn nam 28 prósentum.

Með­alleigu­verð eft­ir al­geng­ustu leigu­svæð­um Grind­vík­inga

Á myndinni hér að neðan má sjá meðalleiguverð allra leigusamninga eftir fjölda herbergja í íbúð. Myndin sýnir að Grindvíkingar greiða hærri leigu í öllum stærðarflokkum húsnæðis, en munurinn á milli Grindvíkinga og annarra leigjenda í Leiguskrá er að meðaltali 7 til 12 prósent. Því greiða Grindvíkingar að meðaltali hærri leigu en aðrir leigjendur fyrir sambærilegar íbúðir.

Með­alleigu­verð eft­ir fjölda her­bergja í íbúð

Munurinn í greiddri leigu er nokkuð jafn á milli stærðarflokka, en hann nemur að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum. Mestur er hann hjá tveggja herbergja íbúðum, en minnstur hjá fjögurra herbergja íbúðum.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS