26. nóvember 2026

HMS herðir varnir gegn netárásum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Netvarnir HMS hafa verið hertar sem liður í viðbragðsáætlun almannavarna vegna verndunar upplýsingainnviða
  • Notendur vefþjónustu og gagnatenginga frá HMS gætu upplifað tímabundið rask á meðan verið er að herða netvarnirnar
  • Engin óeðlileg netöryggisatvik hafa verið skráð hjá HMS á síðustu dögum

Tímabundið rask gæti verið á vefþjónustum og gagnatengingum hjá HMS, þar sem stofnunin hefur aukið öryggiseftirlit með upplýsingakerfum sínum.

Aukið eftirlit er liður í viðbragðsáætlun almannavarna sem virkjuð hefur verið vegna aukinna netárása þar sem gervigreind er notuð. Almannavarnir og CERT-IS hafa lýst yfir óvissustigi, sem er lægsta viðbúnaðarstig af þremur og felur í sér aukna vöktun, árvekni og samráð.

Vegna aukinna netárása með hjálp gervigreindar hefur CERT-IS hvatt íslensk fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila. Jafnframt hvetur CERT-IS fyrirtæki og stofnanir til að tryggja að vöktun og viðbragsgeta þeirra sé í samræmi við þessa þróun.

HMS áréttar að engin óeðlileg netöryggisatvik hafa verið skráð hjá HMS á síðustu dögum. Viðskiptavinir HMS geta sent tölvupóst á hms@hms.is ef rof verður á þjónustum þeirra.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS