26. nóvember 2026
Íbúðum í byggingu á Suðurnesjum fækkar um 37 prósent á milli ára
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS og Tryggð byggð komu að opnum fundi um íbúðauppbyggingu á Suðurnesjum þann 20. nóvember síðastliðinn
- Miðspá húsnæðisáætlana sveitarfélaganna gerir ráð fyrir þörf á um 320 nýjum íbúðum í landshlutanum á hverju ári að meðaltali til ársins 2035
- Reykjanesbær hefur fellt niður innviðagjöld á íbúðarhúsnæði og hyggst auka framboð sérbýlislóða á næstu árum
Íbúðum í byggingu á Suðurnesjum hefur fækkað verulega á undanförnu ári á sama tíma og fullbúnum íbúðum sem standa tómar hefur fjölgað. Þrátt fyrir að hægt hafi á fólksfjölgun í landshlutanum gera húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna ráð fyrir áframhaldandi fólksfjölgun og umtalsverðri íbúðaþörf á næstu árum.
Þetta kom fram á opnum fundi sem HMS og Tryggð byggð héldu í samstarfi við Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum í Reykjanesbæ föstudaginn 20. nóvember. Á fundinum var fjallað um stöðu og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar á Suðurnesjum auk þess sem helstu verkefni HMS á sviði mannvirkja- og skipulagsmála voru kynnt.
Reykjanesbær leggur áherslu á aukið lóðaframboð og lægri byggingarkostnað
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fjallaði um fyrirhugaða íbúðauppbyggingu í sveitarfélaginu. Á næstu árum er lögð áhersla á fjölgun sérbýlislóða, fjölbreyttari íbúðabyggð og skilvirkari skipulagsvinnu.
Í erindi Vilhjálms kom fram að sveitarfélagið hefði fellt niður innviðagjald sem áður nam 35 þúsund krónum á hvern fermetra íbúðarhúsnæðis. Breytingin felur í sér 5,25 milljóna króna lækkun kostnaðar við byggingu 150 fermetra einbýlishúss. Með aðgerðinni er meðal annars leitast við að bæta fjárhagslegar forsendur íbúðauppbyggingar í sveitarfélaginu.
Rýming Grindavíkur setur mark sitt á fólksfjölgun
Jón Örn Gunnarsson, hagfræðingur hjá HMS, fjallaði um stöðu og horfur íbúðauppbyggingar á Suðurnesjum. Íbúum landshlutans hefur fjölgað um 37 prósent frá árinu 2015, einkum vegna aðflutnings erlendis frá. Rýming Grindavíkur sneri þó þróuninni við og fækkaði íbúum um tæplega 1.400 árið 2024.
Áætluð þörf á um 320 nýjum íbúðum á ári
Samkvæmt miðspá húsnæðisáætlana sveitarfélaganna á Suðurnesjum er gert ráð fyrir að íbúum landshlutans fjölgi að meðaltali um 800 á ári á tímabilinu 2026–2035. Miðað við þá þróun er áætlað að byggja þurfi um 320 nýjar íbúðir á ári til að mæta íbúðaþörf.
Á árunum 2023–2025 urðu alls 825 nýjar íbúðir fullbúnar á Suðurnesjum, eða að meðaltali 275 á ári. Gangi miðspá sveitarfélaganna eftir þarf því að byggja að jafnaði um 45 fleiri íbúðir á ári en á síðustu þremur árum.
Samkvæmt septembertalningu HMS voru 388 íbúðir í uppbyggingu á Suðurnesjum, samanborið við 616 á sama tíma í fyrra. Íbúðum í byggingu hefur því fækkað um 37 prósent á milli ára og hafa þær ekki verið færri í septembertalningu síðustu fimm ára. Á sama tíma fjölgaði fullbúnum nýjum íbúðum sem standa tómar úr 114 í 268.
Ný mannfjöldaspá Hagstofu Íslands gerir þó ráð fyrir talsvert hægari fólksfjölgun á landsvísu en fyrri spá. Jafnframt ríkir óvissa um framtíðarþróun búsetu í Grindavík. Mikilvægt er því að sveitarfélögin endurmeti forsendur húsnæðisáætlana sinna í ljósi breyttra aðstæðna.
Mannvirkjaskrá, skipulagsmál og breytt byggingareftirlit til umræðu
Auður Ævarr Sveinsdóttir, verkefnastjóri mannvirkjaskrár hjá HMS, kynnti þróun mannvirkjaskrár og innleiðingu samræmds umsóknarviðmóts fyrir byggingarleyfi. Markmiðið er meðal annars að einfalda ferla, draga úr tvíverknaði og bæta upplýsingar um framvindu íbúðauppbyggingar.
Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags og umhverfismats hjá HMS, fór yfir helstu verkefni á döfinni í skipulagsmálum, þar á meðal aukna samþættingu húsnæðisáætlana og skipulags sveitarfélaga. Í erindi hans kom fram að 63 mál á Suðurnesjum væru í vinnslu í Skipulagsgátt.
Jörundur R. Blöndal, teymisstjóri öryggis og eftirlits hjá HMS, fjallaði um fyrirhugaðar breytingar á byggingareftirliti og einföldun byggingarreglugerðar. Meðal þess sem felst í tillögunum er áhættumiðað byggingareftirlit í höndum óháðra skoðunarstofa, skýrari ábyrgð fagaðila og aukin neytendavernd.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




