27. nóvember 2026
Staðþekking skiptir máli, gott samráð við landeigendur
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Landeigendur á Norðaustur- og Austurlandi virkir í samráði um eignamörk
- Athugasemdir vegna á annað hundrað jarða hafa borist og búist er við fleirum
- Rúmlega 30 fundir haldnir með landeigendum
HMS birti 22. október síðastliðinn drög að áætluðum eignamörkum 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi. Birtingin er þriðji áfangi verkefnisins Áætlun eignamarka. Alls hefur nú yfir 80 prósent flatarmáls Íslands verið afmarkað í landeignaskrá.
Á svæðinu eru meðal stærstu jarða landsins og eignarhald er fjölbreytt. Þar eru stórir landeigendur, jarðir í ríkiseigu, auk þess sem að á vissum svæðum er flókið eignarhald, eða jarðir í eigu margra aðila. Landbúnaður og ferðamennska eru mikilvægir atvinnuvegir á svæðinu og upplýsingar um eignamörk eiga því erindi við fjölbreyttan hóp landeigenda og annarra hagsmunaaðila.
Mikil aðsókn að fundum
Athugasemdir sem hafa borist varða á annað hundrað jarða og er búist við fleirum áður en fresturinn rennur út. Landeigendur hafa jafnframt nýtt sér vel tækifærið til að ræða við sérfræðinga verkefnisins í eigin persónu á fundum á Austurlandi og höfuðborgarsvæðinu.
Aðsókn varð til þess að sérfræðingar HMS fóru tvisvar til Egilsstaða, en fundir með landeigendum voru rúmlega 30 talsins. Landeigendur hafa í langflestum tilfellum sýnt verkefninu jákvætt viðhorf og lagt sitt af mörkum við að bæta upplýsingarnar sem áætlunin byggist á.
Staðþekking sem skiptir máli
Við áætlun eignamarka vinna sérfræðingar HMS út frá þeim heimildum sem eru tiltækar hverju sinni. Þær segja þó ekki alla söguna. Landeigendur búa yfir þekkingu á staðháttum og örnefnum sem hjálpar til við að skýra óvissu og staðsetja merki nákvæmar.
Þátttakan snýst ekki aðeins um að fara yfir línur á korti heldur einnig um að varðveita þekkingu milli kynslóða. Þegar heimildir gefa grófa hugmynd um staðsetningu örnefnis getur staðkunnugur bent á nákvæman stað. Sumir landeigendur hafa sagt í gamni að þeir sem þekktu merkin séu þegar horfnir og að verkefnið hefði þurft að vinna fyrir mörgum árum. Það undirstrikar mikilvægi þess að safna þekkingunni á meðan hún er enn til staðar.
Athugasemdafrestur til 4. desember
Markmið verkefnisins er að byggja upp heildstæða landeignaskrá sem veitir yfirsýn yfir afmörkun og eignarhald lands á Íslandi. Áætluð eignamörk breyta hvorki eignarrétti né þinglýstum réttindum. Þau sýna áætlaða legu eignamarka út frá tiltækum heimildum, en óvissa getur verið um nákvæma staðsetningu þeirra. Athugasemdir landeigenda eru mikilvægur hluti vinnunnar við að bæta gögnin áður en niðurstaða áætlunarinnar er birt.
Landeigendur eru hvattir til að kynna sér drögin í vefsjá landeignaskrár og koma athugasemdum á framfæri með rafrænu eyðublaði á Ísland.is eða í gegnum netfangið jardir@hms.is
Athugasemdafrestur rennur út 4. desember. Vegna fjölda athugasemda og þess hve sumar þeirra eru ítarlegar er gert ráð fyrir að úrvinnsla standi fram yfir desember og í janúar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




