4. júlí 2025

Rúmar 900 milljónir í húsnæðisstuðning í júní

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS greiddi þann 1. júlí um 905 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í júní. Þessar greiðslur styðja við þúsundir heimila um allt land og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra. Stuðningurinn skiptist í tvo meginflokka; almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning fyrir íbúa Kópavogs og Skagafjarðar. 

Al­menn­ar hús­næð­is­bæt­ur 

Húsnæðisbætur, sem er stærsti hluti þessa stuðnings, er ætlað að lækka húsnæðiskostnað tekju- og eignalægri leigjenda til að styðja þá við að standa straum af leigugreiðslum. Í júní greiddi HMS um 880 milljónir króna til um 16.500 umsækjenda í almennar húsnæðisbætur vegna leigu þess mánaðar. 

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur í Kópa­vogi og Skaga­firði 

HMS greiðir einnig sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Kópavog og Skagafjörð sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á forræði sveitarfélaganna og felur í sér aukinn stuðning við þá sem sökum fjárhagslegra- eða félagslegra aðstæðna eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði. Í júní voru greiddar um 25 milljónir króna til um 950 umsækjenda í Kópavogi og 90 umsækjenda í Skagafirði. 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS