18. júní 2025

Vísitala leiguverðs hækkaði um 1,15 prósent í maí 2025

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Vísitala leiguverðs hækkaði á milli mánaða í maí og mældist 123,3 stig
  • Vísitalan hækkaði um 8,83 prósent á milli maímánaða 2024 og 2025, á meðan verðbólga mældist 3,8 prósent á sama tímabili
  • Markaðsleiga hækkaði um 4,9 prósent að raunvirði á ársgrundvelli í maí, samanborið við 6,6 prósenta raunverðshækkun í apríl

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 123,3 stig og hækkaði um 1,15 prósent á milli mánaða í maí. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala leiguverðs hækkað um 8,83 prósent, á sama tíma og verðbólga mældist 3,8 prósent og vísitala íbúðaverðs hækkaði um 5,72 prósent. Leiguverð hækkaði því um 4,9 prósent að raunvirði á milli maímánaða 2024 og 2025.

Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.

Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við nýskráða leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo maígildi hennar tekur mið af leigusamningum í apríl og maí.

Leigu­verð­sjá sýn­ir einnig hækk­un á milli mán­aða í maí

Hægt er að nálgast upplýsingar um leigusamninga í leiguverðsjá HMS, þar sem leigusalar og leigjendur geta nálgast upplýsingar um markaðsverð íbúða og fjölda leigusamninga í hverjum mánuði.

Fermetraverð markaðsleigu á höfuðborgarsvæðiun miðað við 60-90 fermetra leiguhúsnæði í herbergjaflokkum tveggja til fjögurra herbergja var að meðaltali 3.901 kr. í mars og apríl og 3.918 kr. í apríl og maí. Fermetraverð markaðsleigu á ofangreindum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði þar með um 0,44 prósent milli mánaða. Hafa ber þó í huga að leiguverðsjáin sýnir ekki leiguverð einstakra samninga, einungis meðaltöl.

Mæla­borð fyr­ir vísi­töl­ur HMS

Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS